Fótbolti

Alexandra átti eitt af flottustu mörkum vikunnar í Seríu A

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alexandra Jóhannsdóttir hefur skorað tvær tvennur í Seríu A á þessu tímabiliþ
Alexandra Jóhannsdóttir hefur skorað tvær tvennur í Seríu A á þessu tímabiliþ Instagram/@figcfemminile

Íslenska landsliðskonan Alexandra Jóhannsdóttir var á skotskónum í síðustu umferð í ítalska boltanum en hún skoraði tvö mörk í flottum 4-2 sigri á Juventus.

Alexandra var valin besti leikmaður vallarins. Hún er núna komin með fimm deildarmörk á leiktíðinni. Þetta er önnur tvennan hennar því hún skoraði einnig tvö mörk í sigri á Parma í síðasta leik fyrir jól.

Fyrra mark Alexöndru kom með þrumuskoti fyrir utan teig og það mark var valið eitt af þremur flottustu mörkum umferðarinnar.

Alexandra deildi þeim heiðri með hinni norsku Sophie Roman Haug hjá Roma og hinni ítölsku Barbara Bonansea hjá Juventus.

Hér fyrir neðan má sjá þessu þrjú flottustu mörk Seríu A í níundu umferðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×