Blæs á gagnrýni SFS og telur sig hafa verið einmana í viðræðum við Breta Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 8. júní 2021 12:05 Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri SFS og Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkisráðherra Vísir Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi segja nýjan fríverslunarsamnning við Breta vonbrigði. Verðmæti sem hefði verið hægt að sækja með bættum tollakjörum séu ekki í samningnum. Utanríksiráðherra fagnar áhuga samtakanna á málinu, barátta hans hafi verið einmannaleg til þessa
Tilkynnt var um nýjan fríverslunarsamning við Bretland á föstudag. Utanríkisráðherra sagði þar um tímamótasamning að ræða sem markaði þáttaskil í samskiptum ríkjanna. Samningurinn muni skipta sköpum fyrir bæði íslensk fyrirtæki og neytendur. Gagnrýnin Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi sendu hins vegar frá sér tilkynningu í dag þar sem gagnrýnt er að að háir tollar á einstaka sjávarafurðir í Bretlandi hamli því verulega að vinnsla þeirra sé rekstrarlega möguleg hér á landi. Þessu hefði mátt breyta í nýjum fríverslunarsamningi við Breta en einhverra hluta vegna hafi það ekki verið gert. Samningurinn valdi því vonbrigðum. Einmanaleg barátta Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkisráðherra blæs á þessa gagnrýni. „Það eru ekki margir stjórnmálamenn sem hafa unnið jafn ötullega að markaðsaðgengi Íslendinga á erlendum mörkuðum og ég. Ég gleðst mjög yfir því að einhverjir séu að vakna yfir mikilvægi þess að við höfum greiðan aðgang að erlendum mörkuðum. Þetta hefur verið nokkuð einmanalegt fram til þessa,“ segir Guðlaugur. Ráðherra var afdráttarlaus í viðtali við Snorra Másson að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Samkvæmt heimildum fréttastofu telja sjávarútvegsfyrirtæki að þau hafi haft takmarkaðan aðgang að samningsviðræðunum við Breta einkum á lokametrunum. Guðlaugur lýsir hins vegar áhugaleysi hagsmunaaðila í þessum viðræðum. „Þetta er mjög vanþroskuð umræða, ég hef gert mitt í þessu. Við skulum bara segja sem svo að þegar kemur umræða um þessi mikilvægu hagsmunamál okkar Íslendinga þá hefur ekki verið mikill áhugi á að tala fyrir því,“ segir Guðlaugur.
Sjávarútvegur Alþingi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Fríverslunarsamningur við Bretland í höfn Ísland hefur lokið við gerð nýs fríverslunarsamnings við Bretland. Utanríkisráðherra segir um tímamótasamning að ræða sem marki þáttaskil í samskiptum ríkjanna. Ráðgert er að hann verði undirritaður á næstu vikum. 4. júní 2021 11:17 Segir lífskjörin ekki verða tekin að láni Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra segir skuldsetningu ríkissjóðs ekki vera réttu leiðina til þess að viðhalda þeim lífskjörum sem Íslendingar hafa vanist. Hann telur verðmætasköpun og sókn á erlendum mörkuðum mikilvæga í þessu samhengi. 7. júní 2021 20:37 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Fleiri fréttir Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Sjá meira
Fríverslunarsamningur við Bretland í höfn Ísland hefur lokið við gerð nýs fríverslunarsamnings við Bretland. Utanríkisráðherra segir um tímamótasamning að ræða sem marki þáttaskil í samskiptum ríkjanna. Ráðgert er að hann verði undirritaður á næstu vikum. 4. júní 2021 11:17
Segir lífskjörin ekki verða tekin að láni Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra segir skuldsetningu ríkissjóðs ekki vera réttu leiðina til þess að viðhalda þeim lífskjörum sem Íslendingar hafa vanist. Hann telur verðmætasköpun og sókn á erlendum mörkuðum mikilvæga í þessu samhengi. 7. júní 2021 20:37