„Vorum klárlega betra liðið“ Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 20. mars 2023 07:01 Marco Silva var fyrstur að fjúka hjá Fulham er liðið hrundi á Old Trafford. Simon Stacpoole/Getty Images Marco Silva, þjálfari Fulham, sagði lið sitt hafa verið betra en Manchester United þegar liðin mættust í 8-liða úrslitum FA-bikarkeppninnar í gær, sunnudag. Silva, sem og tveir leikmenn Fulham, voru sendir í sturtu þegar Fulham var 1-0 yfir í leiknum. Gekk Man United á lagið eftir það og vann 3-1 sigur.
Eftir markalausan fyrri hálfleik komust gestirnir í Fulham yfir þökk sé Serbanum með markanefið, Aleksandar Mitrović. Það mark kom á 50. mínútu og voru gestirnir með tögl og haldir á vellinum. Þegar stundarfjórðungur lifði leiks gerðust hins vegar ótrúlegir hluti. Brasilíumaðurinn Willian varði boltann með hendi á marklínu. Dómari leiksins fór á endanum og skoðaði atvikið í skjánum á hliðarlínunni. Marco Silva kom askvaðandi og virðist hafa látið nokkur vel valin orð falla. Var hann samstundis rekinn af velli. Í kjölfarið fékk Willian rautt spjald fyrir að koma í veg fyrir mark og þá fékk Mitrović rautt spjald fyrir að tryllast og slá í hendi Chris Kavanagh dómara. Bruno Fernandes skoraði út vítaspyrnunni og örskömmu síðar hafði Marcel Sabitzer komið Man United yfir. Aðeins voru 265 sekúndur frá því að Willian var sendur í sturtu og að Man Utd var komið yfir. Marco Silva gave his honest opinion on a dramatic #EmiratesFACup semi-final at Old Trafford pic.twitter.com/mjWQSWMaZS— Emirates FA Cup (@EmiratesFACup) March 19, 2023 „Við vorum klárlega betri aðilinn þangað til þeir fengu vítaspyrnu og við rautt spjald. Við berum virðingu fyrir Manchester United en við vorum klárlega betra liðið,“ sagði Silva í viðtali eftir leik. „Það sem er erfitt að skilja er að tvívegis í fyrri hálfleik, þar sem í annað skiptið var klárlega brotið á Mitrović í annað skiptið, þá fór enginn í skjáinn. Af hverju skoðaði engin þau atvik,“ spurði Silva aðspurður út í rauðu spjöldin og vítaspyrnudóminn. „Ef þú spyrð hvort ég sé ánægður með það sem ég gerði þá er svarið hreint og beint nei. En ef þú spyrð mig hvort ég hafi verðskuldað rautt spjald, þá efast ég um það. Væri til í að vita hvað dómarinn skrifar í skýrsluna að ég hafi sagt við hann,“ sagði Silva að endingu um rauða spjaldið sem hann fékk. It's another trip to Wembley for @ManUtd! The Red Devils came back from a goal down to seal a 3-1 win and their place in the #EmiratesFACup semi-finals for a record-breaking 31st time! pic.twitter.com/PwI78OQyEl— Emirates FA Cup (@EmiratesFACup) March 19, 2023 Manchester United vann leikinn á endanum 3-1 og er komið í undanúrslit FA-bikarkeppninnar þar sem liðið mætir Brighton & Hove Albion.
Fótbolti Enski boltinn Tengdar fréttir Sjáðu mörkin: Ótrúlegur viðsnúningur Man United sem er komið í undanúrslit Manchester United er komið í undanúrslit FA-bikarkeppninnar eftir ótrúlegan 3-1 sigur á Fulham þar sem gestirnir frá Lundúnum fengu að líta þrjú rauð spjöld á aðeins nokkrum sekúndum er Man United sneri leiknum sér í hag. 19. mars 2023 18:30 Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Fleiri fréttir Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Varamarkmaðurinn og Håland hetjurnar: Man City á toppinn fyrir lokaumferðina Emirates verður aðalheimavöllur Arsenal á næstu leiktíð Guardiola: Arsenal verður meistari ef við vinnum ekki Tottenham Var með 0,99 í xG en skoraði samt ekki Sjá meira
Sjáðu mörkin: Ótrúlegur viðsnúningur Man United sem er komið í undanúrslit Manchester United er komið í undanúrslit FA-bikarkeppninnar eftir ótrúlegan 3-1 sigur á Fulham þar sem gestirnir frá Lundúnum fengu að líta þrjú rauð spjöld á aðeins nokkrum sekúndum er Man United sneri leiknum sér í hag. 19. mars 2023 18:30