Slökktu gróðureld sem kviknaði út frá slípirokk í Grímsnesi Kolbeinn Tumi Daðason, Kjartan Kjartansson og Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifa 11. maí 2021 12:09 Eldur logar í Grímsnesinu. Landhelgisgæslan Slökkviliðsmenn af Suðurlandi náðu að slökkva fljótt í gróðureldi sem kviknaði nærri Búrfelli í Grímsnesi í dag. Hættustigi vegna gróðurelda er nú í gildi allt frá Eyjafjöllum vestur að Breiðafirði og meðferð á opnum eldi bönnuð.
Eldurinn kom upp við Hæðarenda rétt við hlíðar Búrfells í Grímsnesi. Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Árnessýslu, segir að slökkviliðsmenn séu búnir að slökkva eldinn og vinni nú að því að drepa í glæðum. Þyrla Landhelgisgæslunnar ferjaði slökkviliðsmenn á staðinn. Sigurður Karl Jónsson, íbúi á Hæðarenda í Grímsnesinu, segir við fréttaritara Vísis á Suðurlandi að sinubruninn hafi kviknað út frá slípirokk sem hann var að nota. „Já, þetta var mjög fljótt að gerast,“ segir Sigurður. Hann hafi verið að sjóða saman hitaveiturör og það hafi gengið vel í gær. Hann teldi að næturfrost hefði verið í nótt eða einhver raki. En svo hafi ekki verið. Allt hafi verið skraufaþurrt. Óvissustig vegna gróðurelda hefur verið í gildi á svæðinu frá því á fimmtudag. Sumarhúsabyggðir eru bæði fyrir ofan og neðan staðinn þar sem eldurinn logaði. Pétur slökkviliðsstjóri segir gróður svo þurran að gras brotni undan manni. „Ef við vöðum ekki af stað í svona strax getum við misst hlutina í algert óefni,“ segir hann við Vísi. Almannavarnir juku viðbúnað og lýstu yfir hættuástandi vegna gróðurelda allt frá Eyjafjöllum í austri að Breiðafirði í vestri í hádeginu. Ákvörðunin var tekin vegna viðvarandi þurrks sem ekki sér fyrir endann á. Þá hefur meðferð opins elds verið bönnuð á svæðinu. Pétur segir óskandi að fólk fari eftir tilmælum almannavarna og vinni hvorki né vesenist með opinn eld utandyra. „Það er lífshættulegt ástand,“ segir hann. Slökkviliðsmenn að störfum í dag. Eldurinn kviknaði þegar bóndi vann með slípirokk við hitaveiturör.Vísir/Magnús Hlynur Annað sjónarhorn af gróðureldinum.Aðsend Í myndbandinu má sjá þyrluna sækja slökkviliðsmenn á Selfoss. Fréttin hefur verið uppfærð.
Gróðureldar á Íslandi Grímsnes- og Grafningshreppur Slökkvilið Landhelgisgæslan Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Fleiri fréttir Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Sjá meira