Fótbolti

Dagný snoðaði sig fyrir landsleikina

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hárið verður ekki að flækjast fyrir Dagnýju Brynjarsdóttur í landsleikjunum mikilvægu á næstunni.
Hárið verður ekki að flækjast fyrir Dagnýju Brynjarsdóttur í landsleikjunum mikilvægu á næstunni. Instagram/@dagnybrynjars

Íslenska landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir ætti að vera aðeins léttari á fæti þegar hún hittir félaga sína í íslenska kvennalandsliðinu.

Dagný Brynjarsdóttir er í íslenska landsliðshópnum sem er á leiðinni út til að spila tvo síðustu leikina í undankeppni EM. Vinni íslenska liðið báða leikina þá ætti liðið að tryggja sér sæti á EM í Englandi.

Instagram/@dagnybrynjars

Dagný missti af síðasta verkefni vegna meiðsla sem var útileikur á móti Svíþjóð. Dagný Brynjarsdóttir nær vonandi að ná sér fyrir leikina á móti Slóvakíu og Ungverjalandi sem fara fram 26. nóvember og 1. desember.

Dagný ákvað að skella í róttæka útlitsbreytingu fyrir leikina. Hún sagði frá því á Instagram í gærkvöldi að hún hefði snoðað sig og sýndi líka myndir því til sönnunar.

„Fólk sagði að ég myndi aldrei gera þetta og mamma mín leyfði mér það aldrei,“ skrifaði Dagný við myndina af sér á Instagram.

Dagný Brynjarsdóttir er einn mikilvægasti og reyndasti leikmaður íslenska landsliðsins og var sárt saknað í leiknum á móti Svíum.

Dagný hefur skorað 29 mörk í 90 A-landsleikjum þar af 5 mörk í 5 leikjum í þessari undankeppni EM.

Dagný er í ellefta sæti yfir leikjahæstu landsliðskonur Íslands frá upphafi en hún er komin upp í þriðja sæti yfir þær markahæstu. Aðeins Margrét Lára Viðarsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir hafa skorað fleiri mörk fyrir kvennalandsliðið.

Fléttan sem fékk að fjúka.Instagram/@dagnybrynjars

Íslensku stelpurnar eru í öðru sæti riðilsins með 13 stig eftir sex leiki, en Svíþjóð situr á toppnum með 19 stig eftir sjö leiki. Liðin í efsta sæti riðlanna fara beint áfram í lokakeppni EM ásamt þeim þremur liðum í öðru sæti með bestan árangur.

Hinar sex þjóðirnar sem enda í öðru sæti síns riðils fara í umspil um þrjú laus sæti á EM 2021. Svíþjóð er þegar búið að tryggja sér sigur í riðlinum og eru þessir leikir því mikilvægir íslenska liðinu í baráttunni um sæti á EM 2021.

Hér fyrir neðan má sjá þessa færslu Dagnýjar á Instagram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×