Ómar Ingi Magnússon átti sannkallaðan stórleik fyrir Magdeburg þegar liðið vann 25:21-útisigur gegn Bergischer í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag.
Ómar Ingi skoraði átta mörk úr átta skotum og var næst markahæsti leikmaður Magdeburgar Arnór Þór Gunnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Bergischer.
Magdebourg er með 40 stig í fjórða sæti deildarinnar en Bergischer er í áttunda sætinu með 29 stig, tveimur stigum frá Evrópusæti.