Leikur til úrslita í Svíþjóð

Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir.
Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir. Ljósmynd/HHVolley

Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir leikur til úrslita um sænska meistaratitilinn í blaki með félagsliði sínu Hylte/Halmstad en liðið vann Örebro 3:0 í undanúrslitum í Halmstad í gær.

Sigur Hylte/Halmstad var afar sannfærandi en liðið vann fyrsta settið 25:20, annað settið 25:7 og þriðja settið 25:18.

Jóna Guðlaug átti frábæran leik og var valin kona leiksins en liðið mætir Engelholm í úrslitaeinvígi um sænska meistaratitilinn. Fyrsti leikur liðanna fer fram á morgun.

Vinna þarf tvo leiki til þess að tryggja sér sigur í einvíginu en liðin hafa mæst þrívegis í vetur og hefur Hylte/Halmstad unnið tvívegis og einu sinni hefur Engelholm farið með sigur af hólmi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert