Þingmaður gripinn í orgíu sem haldin var á svig við sóttvarnalög Kristín Ólafsdóttir skrifar 1. desember 2020 18:18 József Szájer hefur setið á Evrópuþinginu síðan árið 2004. Vísir/EPA József Szájer, Evrópuþingmaður fyrir ungverska stjórnarflokkinn Fidesz, hefur sagt af sér þingmennsku eftir að hann sótti samkomu í belgísku höfuðborginni Brussel á föstudag.
Fjölmiðlar hafa lýst samkomunni sem hálfgerðri „orgíu“ eða kynsvalli, sem haldið hafi verið á svig við sóttvarnareglur sem nú eru í gildi í Belgíu. Lögregla í Brussel stöðvaði gleðskapinn á föstudagskvöld vegna gruns um að þar væru sóttvarnalög brotin. Fjögurra manna samkomubann vegna kórónuveirufaraldursins er nú í gildi í Belgíu. Belgískir fjölmiðlar greina frá því að um 25 karlmenn hafi verið viðstaddir samkomuna, sumir naktir. Á meðal viðstaddra hafi jafnframt verið þingmaður og nokkrir diplómatar. Miðilinn Politico hefur upp úr tilkynningu frá saksóknara í Brussel að Szájer hafi reynt að flýja vettvang í gegnum glugga. Eiturlyf hafi fundist í bakpoka sem hann hafði meðferðis en honum hafi svo verið fylgt að heimili sínu. Szájer, sem tilkynnti um afsögn sína í gær en viðurkenndi síðar að hún tengdist umræddu samkvæmi, segir að lögregla hafi veitt honum „munnlega áminningu“. Hann kveðst ekki hafa neytt eiturlyfja og segist sjá mjög eftir því að hafa brotið sóttvarnareglur. Þá lýsir hann málinu sem „persónulegu feilspori“ og biðlar til fólks að setja það ekki í samhengi við stjórnmálaflokkinn sem hann tilheyrir eða heimalandið Ungverjaland. Athygli vekur að Szájer, sem virðist þarna hafa verið gestur í einhvers konar kynsvalli með öðrum karlmönnum, er háttsettur innan hins ungverska Fidesz, flokks forsætisráðherrans Viktors Orbán. Flokkurinn hefur rekið talsvert harða stefnu gegn hinseginfólki í landinu.
Ungverjaland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Belgía Tengdar fréttir Ungverjar og Pólverjar gætu stöðvað fjárlög ESB Ráðamenn í Ungverjalandi og Póllandi hóta því að beita neitunarvaldi til að stöðva fjárlagaáætlun Evrópusambandsins og aðgerðaáætlun gegn kórónuveirufaraldrinum ef virðing fyrir réttarríkinu verður gert að skilyrði fyrir fjárveitingum. 16. nóvember 2020 13:39 Orban kveðst hætta að stýra með tilskipunum síðar í mánuðinum Forsætisráðherra Ungverjalands segist búast við að afsala sér þeim neyðarvöldum sem honum voru falin vegna kórónuveirunnar síðar í þessum mánuði. 16. maí 2020 23:30 Telja Ungverjaland ekki lengur lýðræðisríki Ungverjaland, Svartfjallaland og Serbía eru ekki lengur lýðræðisríki. Þetta er mat bandarísku hugveitunnar Freedom House sem birti árlega skýrslu sína um stöðu lýðræðis í dag. 6. maí 2020 20:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Innlent Stjórnarmaður í RÚV segir opinber hlutafélög fé án hirðis Innlent Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Innlent Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Erlent Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Erlent Katrín á toppnum um allt land Innlent Afsalta sjó til drykkjar í þurrki í Barcelona Erlent Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Erlent Halda andlitinu í skólanum en hrynja niður heima Innlent Kíghósti hefur náð útbreiðslu á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Afsalta sjó til drykkjar í þurrki í Barcelona Eiginmaður Sturgeon ákærður fyrir fjárdrátt Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu Johnson í erfiðri stöðu Hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem flýr réttvísina Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Mikill mannskaði eftir sögulegt úrhelli í eyðimörkinni Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan Sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís Borgarstjóri sakaður um brot gegn dóttur sinni Hæsta vindmylla heims á landi reist í Danmörku Þingforsetinn segist ekki ætla að fara fet Ísraelar sagðir búnir að ákveða að svara fyrir sig Boðflennusæfíll hrellir Kanadamenn Mannskæð loftárás Rússa í Norður-Úkraínu Toppurinn á spírunni fundinn: „Margir í sjokki og enn að ná sér“ Kóralrif fölna á heimsvísu í fjórða skiptið á þremur áratugum Eins og hálfs árs úrkoma á einum sólarhring í Dubai Ítarleg úttekt á þjónustu við börn með kynama þungur áfellisdómur Greitt fyrir aðgengi andstæðinga þungunarrofs inn á heilbrigðismiðstöðvar Áætla að yfir 50.000 rússneskir hermenn hafi fallið í átökunum Segja stunguárásina vera hryðjuverk Trump dottaði þegar fyrsta sakamálið var tekið fyrir Svipað og að horfa upp á Notre Dame brenna Sjá meira
Ungverjar og Pólverjar gætu stöðvað fjárlög ESB Ráðamenn í Ungverjalandi og Póllandi hóta því að beita neitunarvaldi til að stöðva fjárlagaáætlun Evrópusambandsins og aðgerðaáætlun gegn kórónuveirufaraldrinum ef virðing fyrir réttarríkinu verður gert að skilyrði fyrir fjárveitingum. 16. nóvember 2020 13:39
Orban kveðst hætta að stýra með tilskipunum síðar í mánuðinum Forsætisráðherra Ungverjalands segist búast við að afsala sér þeim neyðarvöldum sem honum voru falin vegna kórónuveirunnar síðar í þessum mánuði. 16. maí 2020 23:30
Telja Ungverjaland ekki lengur lýðræðisríki Ungverjaland, Svartfjallaland og Serbía eru ekki lengur lýðræðisríki. Þetta er mat bandarísku hugveitunnar Freedom House sem birti árlega skýrslu sína um stöðu lýðræðis í dag. 6. maí 2020 20:00
Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Innlent
Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Innlent