„Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Bjarki Sigurðsson skrifar 7. maí 2024 15:05 Baldvin Þór Bergsson ritstjóri Kastljóss og María Sigrún Hilmarsdóttir, fréttakona sem gerði innslagið í þættinum. Vísir Ritstjóri Kastljóss segist hafa farið yfir athugasemdir Reykjavíkurborgar við innslagi þáttarins í gær og að hann sjái engar staðreyndavillur í því. Verið sé að vitna í gögn beint af vef borgarinnar og úr fjárfestakynningu Haga.
Fyrr í dag birtist tilkynning á vef Reykjavíkurborgar þar sem skrifstofa borgarstjóra og borgarritara gerði athugasemdir við umfjöllun Kastljóss um uppbyggingarreiti og samninga borgarinnar við olíufélög. Telur borgin „alvarlegar staðreyndavillur“ vera í umfjölluninni. Baldvin Þór Bergsson, ritstjóri Kastljóss, segir í samtali við fréttastofu að hann sjái engar staðreyndavillur í þættinum. „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti. Það er svo einfalt. Við erum búin að fara yfir þetta,“ segir Baldvin. Beint úr tilkynningu borgarinnar Í athugasemdum borgarinnar var meðal annars rætt um að í innslagi RÚV hafi verið sagt að fjöldi íbúða sem átti að reisa í fyrsta áfanga samninganna eigi að vera sjö hundruð. Hins vegar væru þær ekki svo margar heldur einungis 450. Baldvin segir upplýsingar um sjö hundruð íbúðir koma beint úr fréttatilkynningu á vef borgarinnar. „Það er hægt að skoða tilkynningu Reykjavíkurborgar þar sem hún tilkynnir samningana. Þar sem hún talar um að fyrir utan þessar lóðir séu lóðir við Stekkjarbakka 4-6 þar sem eru tvö hundruð til þrjú hundruð íbúðir. Þannig samtals gerir Reykjavíkurborg ráð fyrir því í samningum við olíufélögin að það séu sjö til átta hundruð íbúðir í þessum fasa,“ segir Baldvin. Borgin bendir á að Stekkjarbakkalóðin sé ekki hluti af bensínstöðvalóðasamningunum heldur séu það allt önnur viðskipti sem komi málinu ekki við. Þar með sé íbúðafjöldatalan röng. Vitnað í fjárfestakynningu Haga Gerð var athugasemd við verðmat á byggingarrétti fyrir lóð í Norður-Mjódd, sjávarlóð við Klettagarða, lóð við Nýbýlaveg í Kópavogi og aðra við Tjarnarvelli í Hafnarfirði. Í umfjöllun RÚV kemur fram að virðið sé 3,9 milljarðar en borgin vill meina að virðið sé 1,2 milljarðar. „Þar erum við bara að vitna í fjárfestakynningu þar sem Hagar taka sérstaklega fram að það sem þeir setja inn í þetta nýja félag séu lóðir, meðal annars Stekkjarbakkalóðin, og að virðið sé 3,9 milljarðar. Við erum bara að vitna í það. Við erum bara að vitna í fjárfestakynningar frá Högum sjálfum,“ segir Baldvin. Og aftur bendir borgin á að Stekkjarbakkalóðin eigi ekki að vera með í útreikninginum og því sé verðmat á byggingarrétti rangt. Mega vera ósammála viðmælendum Þá komi upplýsingar um að leynd hafi ríkt um málið innan borgarstjórnar ekki beint frá RÚV heldur er það komið frá viðmælendum þeirra. „Þetta eru bara viðmælendur, fulltrúar minnihlutans sem segja þetta. Þau geta alveg verið ósammála því en þetta er bara viðmælendur sem segja þetta. Við erum ekki einu sinni að hafa þetta eftir þeim heldur segja þau þetta sjálf,“ segir Baldvin. Málið sé orðið ótrúlega skrítið. „Þið megið alveg fara að reyna að eyða þessum undarlegu sögusögnum um einhverja þöggun því hún á ekki við nein rök að styðjast. Og er algjörlega forkastanlegt að það sé verið að reyna að blása það upp í fjölmiðlum svo ég sé nú bara alveg heiðarlegur,“ segir Baldvin.
Ríkisútvarpið Fjölmiðlar Reykjavík Borgarstjórn Jarða- og lóðamál Bensín og olía Tengdar fréttir Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri fréttastofu Ríkisútvarpsins segir engin annarleg sjónarmið hafa búið að baki því að innslag sem átti að sýna í fréttaskýringarþættinum Kveik síðasta þriðjudag hafi verið tekið af dagskrá. 27. apríl 2024 14:24 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Fleiri fréttir Sofa rótt í Grindavík og halda í vonina Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Sjá meira
Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri fréttastofu Ríkisútvarpsins segir engin annarleg sjónarmið hafa búið að baki því að innslag sem átti að sýna í fréttaskýringarþættinum Kveik síðasta þriðjudag hafi verið tekið af dagskrá. 27. apríl 2024 14:24