Halldór: Ekki verið að hugsa um velferð leikmannanna Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 28. febrúar 2021 22:21 Halldór hefur áhyggjur af miklu álagi í Olís-deildinni. vísir/hulda margrét Mikillar óánægju gætir með leikjaálag í Olís deild karla í handbolta. „Þetta var hrikalega erfitt kvöld,“ sagði Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari Selfoss, eftir sigur á Stjörnunni í kvöld. „Gummi meiðist hérna í upphitun og við erum með eitthvað plan sem er farið strax 20 mínútum fyrir leik. Strákarnir voru bara frábærir við erfiðar aðstæður og spiluðu virkilega góðan leik. Stjarnan setti mikla pressu á okkur og nýttu sér sína styrkleika vel, en við gerðum það líka og ég er virkilega stoltur af strákunum.“ Halldór hafði ekki góðar fréttir að færa af Guðmundi og talaði um mikið leikjaálag. „Ég held að hann sé mjög líklega með slitna hásin. Það er mjög sennilega leikjaálagið sem hefur áhrif á þetta. Það er kannski allt í lagi að vera með smá pillu á HSÍ með það, ég held að menn hafi ekki alveg gert sér grein fyrir hvað þeir voru a fara út í með leikjaálag á leikmennina. Það er allavega ekki verið að hugsa um velferð leikmannana í öllum þessum leikjum, það er ljóst.“ Halldór var mjög ánægður með hvernig hans strákar tækluðu þetta verkefni í ljósi þess að einn af þeirra betri leikmönnum hafði meiðst í upphitun. „Við gerðum auðvitað nokkra feila í lokin, kannski voru menn orðnir þreyttir, Einar Sverris meiddur, Gummi meiddur og Ísak meiddur en við urðum bara að gefa allt í þetta. Frábært að vinna með einu marki og fá tvö stig í ljósi þess hvernig leikurinn spilaðist. Ég hefði verið hundfúll að fá bara eitt stig, hvað þá ekki neitt stig.“ „Við fáum á okkur 28 mörk, þeir spila sjö á sex stóran hluta leiksins en við erum að skora 29 mörk og þeir spila þrjú mismunandi varnarafbrigði þannig að ég get ekki verið annað en sáttur,“ sagði Halldór Jóhann. Næsti leikur Selfoss er fyrir norðan gegn KA og Halldór fór aðeins yfir þann leik. „Ég vonast til að Einar geti spilað, en ég er ekkert alveg viss um það. Við tökum enga sénsa, það getur bara skapað fjórar til sex vikur í viðbót í meiðslum þannig að við ætlum að hugsa um velferð leikmannana. Þetta verður erfiður leikur, KA liðið er búið að vera frábært í vetur og ég þekki KA heimilið vel og ég veit að þar verður fólk til að styðja sitt lið en við ætlum bara að gera okkar besta þar og undirbúa okkur vel fyrir þann leik.“ Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Olís-deild karla UMF Selfoss Mest lesið Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Enski boltinn Bergrós aftur best í heimi og fjögur frá Íslandi í undanúrslitum Sport Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Körfubolti Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Enski boltinn Infantino: Stórkostlegt að hitta Þorvald Fótbolti Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Enski boltinn Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Íslenski boltinn „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Handbolti Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi Handbolti Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Enski boltinn Fleiri fréttir „Það er ekkert plan B“ Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Carlos tekur við Selfossi: „Hann er algjör handboltaheili“ Aue ævintýri Óla Stef tekur enda eftir tímabilið „Mun stærri sigur en ég bjóst við“ Umfjöllun: Valur - Minaur Baia Mare 36-28 | Fara út með átta marka forskot „Hefðum þegið betri markvörslu“ „Höfðum stjórn á leiknum allan tímann“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-31 | FH komið í forystu í einvíginu við ÍBV Óðinn með 9 mörk þegar Kadetten tók forystuna í einvíginu „Við erum góðir og þeir eru góðir“ Aldís Ásta atkvæðamikil þegar Skara jafnaði einvígið Zwickau sogast niður í fallbaráttu Orri Freyr fór mikinn í stórsigri Sporting Fredericia missti toppsætið til Skjern Haukur og félagar byrja undanúrslitin vel Þýðir ekki að mæta með hangandi haus: „Það er ekkert bull“ „Hef enga trú á því að Þjóðarhöll verði risin árið 2031“ Fjórtán íslensk mörk og Magdeburg á toppinn Úlfurinn gæti farið til Magdeburg Svona var blaðamannafundur Snorra Steins Perla frá Perlu eitt af flottustu mörkum undankeppninnar Hvað viltu meira? „Góð aðventa með handbolta og skíðum“ Hergeir til Hauka Arnar Freyr öflugur í góðum sigri Melsungen Sjá meira
„Þetta var hrikalega erfitt kvöld,“ sagði Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari Selfoss, eftir sigur á Stjörnunni í kvöld. „Gummi meiðist hérna í upphitun og við erum með eitthvað plan sem er farið strax 20 mínútum fyrir leik. Strákarnir voru bara frábærir við erfiðar aðstæður og spiluðu virkilega góðan leik. Stjarnan setti mikla pressu á okkur og nýttu sér sína styrkleika vel, en við gerðum það líka og ég er virkilega stoltur af strákunum.“ Halldór hafði ekki góðar fréttir að færa af Guðmundi og talaði um mikið leikjaálag. „Ég held að hann sé mjög líklega með slitna hásin. Það er mjög sennilega leikjaálagið sem hefur áhrif á þetta. Það er kannski allt í lagi að vera með smá pillu á HSÍ með það, ég held að menn hafi ekki alveg gert sér grein fyrir hvað þeir voru a fara út í með leikjaálag á leikmennina. Það er allavega ekki verið að hugsa um velferð leikmannana í öllum þessum leikjum, það er ljóst.“ Halldór var mjög ánægður með hvernig hans strákar tækluðu þetta verkefni í ljósi þess að einn af þeirra betri leikmönnum hafði meiðst í upphitun. „Við gerðum auðvitað nokkra feila í lokin, kannski voru menn orðnir þreyttir, Einar Sverris meiddur, Gummi meiddur og Ísak meiddur en við urðum bara að gefa allt í þetta. Frábært að vinna með einu marki og fá tvö stig í ljósi þess hvernig leikurinn spilaðist. Ég hefði verið hundfúll að fá bara eitt stig, hvað þá ekki neitt stig.“ „Við fáum á okkur 28 mörk, þeir spila sjö á sex stóran hluta leiksins en við erum að skora 29 mörk og þeir spila þrjú mismunandi varnarafbrigði þannig að ég get ekki verið annað en sáttur,“ sagði Halldór Jóhann. Næsti leikur Selfoss er fyrir norðan gegn KA og Halldór fór aðeins yfir þann leik. „Ég vonast til að Einar geti spilað, en ég er ekkert alveg viss um það. Við tökum enga sénsa, það getur bara skapað fjórar til sex vikur í viðbót í meiðslum þannig að við ætlum að hugsa um velferð leikmannana. Þetta verður erfiður leikur, KA liðið er búið að vera frábært í vetur og ég þekki KA heimilið vel og ég veit að þar verður fólk til að styðja sitt lið en við ætlum bara að gera okkar besta þar og undirbúa okkur vel fyrir þann leik.“ Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olís-deild karla UMF Selfoss Mest lesið Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Enski boltinn Bergrós aftur best í heimi og fjögur frá Íslandi í undanúrslitum Sport Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Körfubolti Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Enski boltinn Infantino: Stórkostlegt að hitta Þorvald Fótbolti Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Enski boltinn Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Íslenski boltinn „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Handbolti Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi Handbolti Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Enski boltinn Fleiri fréttir „Það er ekkert plan B“ Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Carlos tekur við Selfossi: „Hann er algjör handboltaheili“ Aue ævintýri Óla Stef tekur enda eftir tímabilið „Mun stærri sigur en ég bjóst við“ Umfjöllun: Valur - Minaur Baia Mare 36-28 | Fara út með átta marka forskot „Hefðum þegið betri markvörslu“ „Höfðum stjórn á leiknum allan tímann“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-31 | FH komið í forystu í einvíginu við ÍBV Óðinn með 9 mörk þegar Kadetten tók forystuna í einvíginu „Við erum góðir og þeir eru góðir“ Aldís Ásta atkvæðamikil þegar Skara jafnaði einvígið Zwickau sogast niður í fallbaráttu Orri Freyr fór mikinn í stórsigri Sporting Fredericia missti toppsætið til Skjern Haukur og félagar byrja undanúrslitin vel Þýðir ekki að mæta með hangandi haus: „Það er ekkert bull“ „Hef enga trú á því að Þjóðarhöll verði risin árið 2031“ Fjórtán íslensk mörk og Magdeburg á toppinn Úlfurinn gæti farið til Magdeburg Svona var blaðamannafundur Snorra Steins Perla frá Perlu eitt af flottustu mörkum undankeppninnar Hvað viltu meira? „Góð aðventa með handbolta og skíðum“ Hergeir til Hauka Arnar Freyr öflugur í góðum sigri Melsungen Sjá meira