Gætu þurft að sætta sig við að þingskapalög verði brotin Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 6. desember 2021 11:46 Óli Björn Kárason er nýr þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Hann segir að reynt verði að jafna kynjahlutföllin í þingnefndum en takist það ekki með góðum hætti verði svo að vera. vísir/vilhelm Þingflokksformenn hafa misjafnar hugmyndir um hvernig eigi að jafna kynjahlutfall í fastanefndum þingsins. Stjórnarandstaðan bendir á stjórnina sem segir málið hins vegar vera á sameiginlegri ábyrgð allra flokka.
Ójafnt kynjahlutfall í allavega tveimur fastanefndum þingsins er í algeri andstöðu við nýtt ákvæði í þingskapalögum sem var samþykkt í vor og kveður á um að kynjahlutfall skuli vera eins jafnt og kostur er á. Í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sitja átta konur og einn karl en í utanríkismálanefnd sitja sjö karlar og tvær konur. Forseti Alþingis, benti þingflokksformönnum á þetta vandamál fyrir helgi og segir það þeirra að leysa vandann. Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, hefur beint því til þingflokksformanna að reyna að jafna kynjahlutfallið.Vísir/Vilhelm Ábyrgðin á herðum stjórnarflokkanna Þingflokksformanni Samfylkingarinnar, þykir ábyrgðin þó vera stjórnarflokkanna. „Þetta er nú bara eitthvað sem að stjórnarflokkarnir verða að vinna í hjá sér. Þetta verkefni bara lendir á þeirra borði,“ segir Helga Vala Helgadóttir. „Ábyrgðin er ríkari þar. Þau tóku tvo þriðju hluta nefndanna sem er í fyrsta skipti síðan 1986 sem það gerist. Að valdinu sé beitt með þeim hætti.“ Helga Vala, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, telur málið á ábyrgð stjórnarflokkanna. vísir/vilhelm Stjórnarandstaðan á reyndar fjóra af níu nefndarmönnum í báðum þeim nefndum þar sem kynjahlutfallið er ójafnast. Ætlar ekki að víkjast undan ábyrgð Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir að formenn þingflokka muni ræða málið á næstu dögum og reyna að finna lausn á vandanum. Hann ætlast þó til að stjórnarandstaðan taki þátt í verkefninu. „Það er nú oft þannig að það er ætlast til þess að aðrir leysi hlutina og ef svo er þá er ég ekkert að víkjast undan því en þetta er auðvitað sameiginlegt verkefni þingsins í heild,“ segir Óli Björn Kárason. Og takist ekki að laga kynjahlutfallið svo allir verði sáttir verði svo að vera, þrátt fyrir að það stangist á við þingskapalög. „Við auðvitað verðum að skipa til verka eins og við teljum að nefndirnar séu best skipaðar. Ef að það þýðir í okkar huga að það séu fleiri konur en karlar þá verður svo að vera.“
Alþingi Jafnréttismál Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Fleiri fréttir Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Sjá meira