Segir Kristrúnu fara með gamla tuggu úr Valhöll Hólmfríður Gísladóttir skrifar 23. maí 2023 10:21 „Ætlum við í alvöru að láta Sjálfstæðisflokkinn ráða þessu áfram og taka undir möntruna um að málið sé ekki á dagskrá? Jafnvel þegar kannanir benda allar til að málið sé einmitt á dagskrá!“ spyr Sigmar. Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi fjölmiðlamaður, er nokkuð harðorður í garð Kristrúnar Frostadóttur, formanns Samfylkingarinnar, í aðsendri grein á Vísi vegna „stefnubreytingar“ síðarnefndu í Evrópumálum.
Í greininni, sem ber yfirskriftina „Gamalt handrit úr Valhöll“, sakar Sigmar Kristrúnu um að kyrja sömu möntru og Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafi gert um árabil: ESB sé ekki á dagskrá. Sigmar vitnar í viðtal við Kristrúnu þar sem hún sagði ekkert þýða „að halda einhverju til streitu sem er kannski ekki vilji fyrir meðal þjóðarinnar“. Ef landsmenn kölluðu eftir því að ganga í Evrópusambandið myndi ekki standa á Samfylkingunni en það væri ekki hægt að keyra það í gegn þegar aðeins tveir flokkar á þingi hefðu áhuga á því. „Svo mörg voru þau orð. Þessa hugsun má umorða í þekktan frasa: ESB er ekki á dagskrá. Hljómar vissulega kunnuglega, en ekki úr þessari átt,“ segir Sigmar. „Í áratugi hafa Sjálfstæðisflokkur og Framsókn kyrjað þessa möntru, stundum með trúarlegri innlifun. Málið er ekki á dagskrá. Handrit frasans og samskonar slagorða er skrifað í Valhöll og lesið yfir og blessað af Kaupfélagi Skagfirðinga og fleiri hagsmunaaðilum sem lifa og hrærast í fákeppnisumhverfi sem þjónar þeirra hagsmunum en ekki hagsmunum almennings.“ Sigmar segir orð Kristúnar hljóta að vera nokkur vonbrigði fyrir þá sem vilja meiri stöðugleika. Þau séu ekki aðeins í takt við málflutning stjórnarflokkana heldur einnig efnislega röng. Þanig séu í raun 44 prósent þjóðarinnar fylgjandi aðild að ESB en 34 prósent andvíg. Þrátt fyrir að nokkrir þingmenn Samfylkingarinnar tali enn fyrir aðild sé ekki hægt að skilja orð Kristrúnar öðruvísi en sem svo að „Evrópuhugsjónin“ sé ekki ofarlega á lista flokksins. Sigmar segir Samfylkinguna að ná sama styrk og fyrir hrun, í kringum 26 prósent, en það hafi flokkurinn gert með ESB sem „hryggjarstykkið“ í stefnu sinni. Því sé holur hljómur í fullyrðingum andstæðinga ESB um að stefnubreyting varðandi ESB sé ástæðan fyrir auknum stuðningi. „Sömu raddir planta gjarnan inn þeirri viðbótarskýringu að stefnubreytingin nú sé tilraun til að byggja brú yfir til Sjálfstæðisflokksins. Ekki ætla ég gera nýjum formanni flokksins upp þá höfuðsynd, því það væri ávísun á áframhaldandi vaxta og verðbólguáþján íslenskra heimila í boði krónunnar,“ segir Sigmar. Hann spyr hvort Evrópusinnar ætli virkilega að láta Sjálfstæðisflokkinn ráða málum áfram og taka undir möntruna um að aðild að ESB sé ekki á dagskrá. „Þessi barátta er sérlega brýn í dag þegar við sjáum öfl vera að snúast gegn EES samningnum og vilja leiða okkur aftur inn í torfbæina, þangað sem bresku afturhaldi tókst með lygum og áróðri að teyma bresku þjóðina. Þessi öfl eru sterk innan Sjálfstæðisflokksins, en finnast líka í öðrum flokkum sem sæti eiga á Alþingi. Sturluð staðreynd.“
Viðreisn Samfylkingin Evrópusambandið Alþingi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Engin veit hver hún er“ Erlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Fleiri fréttir Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Sjá meira