Hreindýraveiðar með besta móti þetta árið Jakob Bjarnar skrifar 22. september 2020 16:11 Á veiðislóð í sumar. Nánar tiltekið á svæði eitt en um níu svæði er að ræða. Fallþungi tarfsins sem sjá má í á sexhjólinu var rétt tæpir 100 kíló. Að sögn Jóhanns G. Gunnarssonar hjá ust var væna tarfa að finna á öllum svæðum. visir/jakob
Síðasti dagur haustveiða á hreindýri var á sunnudaginn eða 20. september. Eins og fram kemur í tilkynningu á síðu Umhverfisstofnunar var kvóti þessa árs 1325 dýr, 805 kýr og 520 tarfar. Felld voru 1264 dýr og ekki náðist að fella 11 kýr og 2 tarfa af útgefnum kvóta sem veiða átti nú í haust. 48 kýr eru svo í úthlutuðum leyfum í nóvember á svæði 8 og svæði 9. Jóhann G. Gunnarsson, starfsmaður stofnunarinnar, lætur vel að veiðiskapnum. „Veðurfarslega eitt besta tímabilið síðan ég byrjaði,“ segir Jóhann sem hefur komið að hreindýraveiðum með einum hætti eða öðrum áratugum saman. Veiðarnar gengu vel. Þær fóru rólega af stað eins og oft áður en Vísi er kunnugt um að fjöldi veiðimanna sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu vilja gjarnan miða ferð sína austur við 20. ágúst en þá hefst gæsaveiðitímabilið. Flest dýr voru einmitt felld eftir 20. ágúst. Eins og Jóhann segir var veðrið einstaklega hagstætt þetta veiðitímabilið og lítið um þokutíð sem oft hefur gert mönnum erfitt um vik. Þá getur reynst erfitt að finna dýrin. Síðustu vikur veiðitímans var veðrið gott á öllum svæðum. Vænn tarfur sem felldur var á svæði eitt.visir/jakob Í fréttatilkynningu á síðu Umhverfisstofnunar kemur fram að alltaf sé nokkuð um að leyfum sé skilað inn eftir að veiðitímabil hefst en byrja má að veiða tarfa 15. júlí og kýr 1. ágúst. „74 einstaklingar þáðu leyfi sem þeim voru úthlutuð á biðlista eftir að veiðar hófust og 212 einstaklingum var boðið að taka leyfi. Töluverð óvissa var í sumar um hvort Covid veiran myndi setja mark sitt á tímabilið að einhverju leyti, en er það mat okkar hjá Umhverfisstofnun að svo hafi ekki verið,“ segir á vefsíðu stofnunarinnar. Áhyggjur voru uppi um að kórónuveirufaraldurinn kynni að setja strik í reikninginn og veiðimenn myndu halda að sér höndum. Með þá þeim afleiðingum að ekki tækist að koma kvótanum út. Svo fór þó ekki. Fáum leyfum var skilað inn sem rekja má til sóttvarna eða takmarkana tengdum þeim. „Nokkrir veiðileyfishafar búsettir erlendis skiluðu þó inn sínum leyfum af þeim sökum.“
Umhverfismál Dýr Skotveiði Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Innlent Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Fleiri fréttir Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Sjá meira