Aftanákeyrsla í grennd við Bifröst

Vegurinn er nú aftur opinn.
Vegurinn er nú aftur opinn. mbl.is/Eggert

Hringveginum var lokað í stutta stund vegna aftanákeyrslu sem varð í kringum fimmleytið í dag í grennd við Bifröst samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliðinu í Borgarbyggð.

Engin slasaðist en olía lak úr bílunum og eru hreinsistörfum slökkviliðsins lokið og er vegurinn nú aftur opinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert