fbpx
Þriðjudagur 14.maí 2024
433Sport

Juventus vill hafa Ronaldo á næstu leiktíð en ætla ekki að semja við hann aftur

Helgi Sigurðsson
Mánudaginn 26. júlí 2021 15:00

Cristiano Ronaldo og Georgina Rodriguez.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Juventus vill halda Cristiano Ronaldo hjá félaginu á næstu leiktíð. Leikmaðurinn sjálfur er tilbúinn til þess að vera áfram. Það er þó ekki á dagskrá ítalska félagsins eins og er að framlengja samning portúgölsku stjórstjörnunnar. Núgildandi samningur rennur út eftir eitt ár. Sky Sports greinir frá.

Hinn 36 ára gamli Ronaldo þénar um 30 milljónir evra á ári hjá Juve, tæplega 4,5 milljarða íslenskra króna. Juventus er ekki tilbúið til þess að hafa hann áfram á slíkum samningi eftir næstu leiktíð. Það er því útlit fyrir að félagið taki áhættuna á að missa hann frítt næsta sumar.

Ronaldo gerði 29 mörk í 33 leikjum í ítölsku Serie A á síðustu leiktíð er Juventus missti af Ítalíumeistaratitlinum í fyrsta sinn í ellefu ár.

Fréttaskýringu Sky Sports í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Þjálfaraleit Bayern heldur áfram og nú er þetta nafn efst á blaði

Þjálfaraleit Bayern heldur áfram og nú er þetta nafn efst á blaði
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Stuðningsmenn Arsenal hafa áhyggjur fyrir morgundeginum – Þetta lag var sungið um helgina

Stuðningsmenn Arsenal hafa áhyggjur fyrir morgundeginum – Þetta lag var sungið um helgina
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Þetta verður launapakki Mbappe í Madríd – Fær 15 milljarða fyrir það eitt að skrifa undir

Þetta verður launapakki Mbappe í Madríd – Fær 15 milljarða fyrir það eitt að skrifa undir
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Valur telur rembing varðandi Ryder í Vesturbæ hreinlega trufla – „Bauð öllum í bjór“

Valur telur rembing varðandi Ryder í Vesturbæ hreinlega trufla – „Bauð öllum í bjór“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Hitti leikmann United á föstudag – Þetta er maðurinn sem hópurinn telur að taki við

Hitti leikmann United á föstudag – Þetta er maðurinn sem hópurinn telur að taki við
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Bayern reyndi við stjóra Palace en snarhætti við þegar félagið skellti þessum verðmiða á hann

Bayern reyndi við stjóra Palace en snarhætti við þegar félagið skellti þessum verðmiða á hann
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Arsenal bætti 20 ára gamalt met í gær

Arsenal bætti 20 ára gamalt met í gær