Enn óvissa um mikilvægan fiskmarkað í Bretlandi Heimir Már Pétursson skrifar 17. nóvember 2020 19:00
Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir að enn ríki óvissa um tollakjör og fleira vegna útflutnings á fiski til Bretlands til lengri tíma litið eftir að Bretar ganga úr Evrópusambandinu um áramót. Utanríkisráðherra er bjartsýnn á samninga. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS. Á undanförnum árum hefur töluvert magn af ferskum fiski frá Íslandi farið um Ermasundsgöngin frá Bretlandi til meginlands Evrópu. Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir að þar gætu orðið farartálmar eftir að Bretland fer að öllum líkindum út úr Evrópusambandinu án samnings um áramótin. „Og við því hafa fyrirtæki bæði í sjávarútvegi og svo flutningafyrirtækin brugðist við að ég tel nokkuð vel,“ segir Heiðrún Lind. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir íslensk stjórnvöld hafa gert bráðabirgðasamkomulag við Breta um að sömu kjör og reglur og giltu áður gildi fram á mitt næsta ár. „Við erum búin að tryggja hagsmuni til bráðabirgða. Það er að segja ef það verður ekki samningur. Hins vegar erum við enn að vinna að því að klára framtíðarsamninga við Breta og náttúrlega hættum því ekki fyrr en það verk er klárað,” segir utanríkisráðherra. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.Vísir/Vilhelm Bretar munu innleiða nýtt innflutningseftirlit og rakningarkerfi með dýraafurðum um áramótin. Frá 1. apríl þurfa heilbrigðisvottorð að fylgja vörunum og frá og með 1. júlí þurfa allar vörur að fara í gegnum landamæraeftirlit. En þótt flutningsleiðir á fiski til Evrópu færist frá Bretlandi hafa Bretar sjálfir flutt inn um 17 prósent af íslenskum fiskútflutningi. „Það er bara milljón dollara spurninginn. Hvað verður um breska markaðinn,” segir Heiðrún Lind. Allar líkur séu þó á að hann verði áfram sterkur fyrir íslenskar sjávarafurðir en þar sé að mörgu að huga. „Í fyrsta lagi auðvitað tollakjör. Hver verða þau eftir Brexit. Í öðru lagi hvaða heilbrigðiskröfur verða gerðar. Það eru fyrirhugaðar breytingar á því kerfi. Svona hlutir geta auðvitað leitt til hökts eða breytinga á því hvort viðskipti séu fýsileg eða ekki,” segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir.
Brexit Sjávarútvegur Bretland Tengdar fréttir Óhræddur við að fara án samnings Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands segist sannfærður um að Bretlandi muni vegna vel, þó svo að samningar við Evrópusambandið náist ekki. 16. nóvember 2020 21:34 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Fleiri fréttir Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Sjá meira
Óhræddur við að fara án samnings Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands segist sannfærður um að Bretlandi muni vegna vel, þó svo að samningar við Evrópusambandið náist ekki. 16. nóvember 2020 21:34