Íslenski boltinn

Þjálfarinn skoraði síðasta markið sitt þegar KA vann Víking síðast fyrir norðan

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hallgrímur Jónasson á hliðarlínunni hjá KA.
Hallgrímur Jónasson á hliðarlínunni hjá KA. Vísir/Hulda Margrét

KA tekur á móti Víkingum í Bestu deild karla í fótbolta á Akureyri í kvöld en norðanmenn reyna þar að verða fyrsti til að taka stig af toppliði Víkinga í sumar.

Leikurinn hefst klukkan 18.00 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 5. Útsendingin hefst klukkan 17.50.

Þetta er fyrsti heimaleikur KA á móti Víkingum siðan að Hallgrímur Jónasson tók við þjálfun liðsins af Arnari Grétarssyni.

Víkingum hefur liðið mjög vel á Akureyri undanfarin ár og hafa náð í tíu af tólf mögulegum stigum síðan að Arnar Gunnlaugsson tók við þjálfun liðsins.

Í síðustu fjórum leikjum liðanna fyrir norðan eru Víkingar með tíu stig en KA-menn aðeins eitt. Markatalan er 8-5, Víkingum í vil.

  • Síðustu leikir KA og Víkings á Akureyri í efstu deild:
  • 2022: Víkingur vann 3-2
  • 2021: Víkingur vann 1-0
  • 2020: Markalaust jafntefli
  • 2019: Víkingur vann 4-3
  • 2018: KA vann 4-1

KA vann síðast heimaleik á móti Víkingi í efstu deild þegar liðið mættust á Akureyrarvelli 3. júní 2018.

KA vann leikinn 4-1 þar sem núverandi leikmenn Hallgrímur Mar Steingrímsson og Ásgeir Sigurgeirsson voru báðir meðal markaskorara.

Hallgrímur Jónasson skoraði þriðja mark KA á 54. mínútu og kom liðinu í 3-0. Þetta var sögulegt mark fyrir Hallgríms því þetta er hans síðasta mark í efstu deild á Íslandi.

Markið skoraði Hallgrímur með skalla á fjærstöng eftir stoðsendingu frá Hallgrími Mar Steingrímssyni sem var með eitt mark og tvær stoðsendingar á móti sínum gömlu félögum.

Hér fyrir neðan má sjá mörkin úr leiknum.

Klippa: KA vann Víking 4-1 3.júní 2018



Fleiri fréttir

Sjá meira


×