Ný reglugerð tekur gildi á miðnætti: 500 mega koma saman og opnunartími lengdur Hólmfríður Gísladóttir skrifar 14. september 2021 11:47 Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. Vísir/Vilhelm Á miðnætti tekur gildi ný reglugerð um sóttvarnaaðgerðir en samkvæmt henni munu 500 geta komið saman án takmarkana og opnunartími skemmtistaða verður lengdur um klukkustund, það er að segja að staðirnir mega hleypa gestum inn til miðnættis en verða að vera búnir að loka klukkan eitt. Þetta var meðal þess sem kom fram í máli Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra eftir ríkisstjórnarfund sem lauk rétt í þessu. Alls munu 1.500 mega koma saman á stórum sitjandi viðburðum þar sem krafa er gerð um framvísun neikvæðs hraðprófs. Grímuskylda á slíkum viðburðum verður einnig felld niður. Almenn fjarlægðartakmörk og grímuskylda verða þá óbreytt og verða því þeir sem starfa í miklu návígi við aðra, til dæmis hárgreiðslufólk, áfram að bera grímu. Þrjú til fjögur afbrigði „á radarnum“ Breytingarnar eru í fullkomnu samræmi við tillögur sóttvarnalæknis og að sögn Svandísar var samhljómur um þær á ríkisstjórnarfundi. „Það eru alltaf einhverjir sem vilja ganga lengra, einverjir sem vilja ganga skemur, einhver sem vill ræða grímunotkun, ræða fjarlægðir,“ sagði Svandís um samtal ráðherra. Spurð að því hvort kúrfan færi ekki bara upp aftur í kjölfar afléttinga vitnaði Svandís í sóttvarnalækni og sagði um að ræða varfærin skref. Hún sagði í raun lítið í samfélaginu sem væri háð takmörkunum en á radarnum væru þrjú eða fjögur afbrigði sem þyrfti að fylgjast með. Hún sagði það mikla breytingu fyrir leikhús og aðra svipaða starfsemi að geta nú haft 500 manns í sama hólfi og sömuleiðis fyrir það sem væri kallað „djammið“. Spurð um hættuna af djamminu benti hún á að bylgjurnar hefðu gjarnan byrjað þar. Breytingar á samkomutakmörkunum frá og með 15. september til 6. október - Almennar fjöldatakmarkanir verða 500 manns. Börn fædd 2006 og síðar verða nú undanþegin fjöldatakmörkunum og telja því ekki í hámarksfjölda. - Hámarksfjöldi á hraðprófsviðburðum verður 1.500 manns - Hraðprófsviðburðir geta verið standandi með 1 metra reglu (gríma ef 1 metra verður ekki viðkomið) - Séu þeir sitjandi þarf ekki að viðhafa 1 metra og ekki hafa grímu. - Áfram verður skylt að halda skrá yfir gesti en ekki skrá í sæti. - Nálægðartakmörkun verður almennt óbreytt 1 metri nema á sitjandi viðburðum og á skólaskemmtunum. - Grímuskylda verður að mestu óbreytt, þ.e. hafa þarf grímu innandyra þegar ekki er unnt að viðhafa 1 metra fjarlægð. - Veitingastaðir, þar sem heimilaðar eru áfengisveitingar, geta haft opið klukkustund lengur, til kl. 00.00 og tæma þarf staðina fyrir kl. 01.00. - Grunn- og framhaldsskólum verður gert heimilt að halda samkomur fyrir nemendur fyrir allt að 1.500 gesti að því gefnu að þeir framvísi neikvæðu hraðprófi sem ekki má vera eldra en 48 klst. gamalt. Ekki verður gerð krafa um nálægðatakmörk eða grímuskyldu, en skylt verður að skrá gesti. Horfa til samstarfs við einkaaðila Ráðherra sagði útfærslu hraðprófanna lokið en skipuleggjendur hefðu kallað eftir því að boðið yrði upp á hraðprófin víðar en bara á Suðurlandsbraut og verið væri að skoða hvernig mætti koma til móts við þær óskir, meðal annars með samstarfi við einkaaðila. Svandís sagið sérstakan tíma framundan en sú reglugerð sem nú tæki gildi myndi ganga úr gildi eftir kosningar og í öðru umhverfi. Sömu sóttvarnalög yrðu hins vegar í gildi og sama ferli. Hún sagði það gæfu landsmanna að hlusta á það sem sóttvarnalæknir hefði haft fram að færa, jafnvel þótt menn hefðu haft misjafnar skoðanir. Samtalið um sóttvarnaaðgerðirnar hefði verið opið og sóttvarnalæknir hlustað á ólíkar raddir en látið heilsu og líf sæta forgangi. Ráðherra sagðist ekki geta spáð um framhaldið, hvort 500 manna fjöldatakmörkin væru komin til að vera. Það kæmi í ljós á næstu vikum og mánuðum hvernig tækist að halda faraldrinum í skefjum en hún teldi óhætt að horfa bjartsýnum augum fram á veginn. Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Heilbrigðismál Heilsugæsla Samkomubann á Íslandi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Innlent Fleiri fréttir „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Sjá meira
Þetta var meðal þess sem kom fram í máli Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra eftir ríkisstjórnarfund sem lauk rétt í þessu. Alls munu 1.500 mega koma saman á stórum sitjandi viðburðum þar sem krafa er gerð um framvísun neikvæðs hraðprófs. Grímuskylda á slíkum viðburðum verður einnig felld niður. Almenn fjarlægðartakmörk og grímuskylda verða þá óbreytt og verða því þeir sem starfa í miklu návígi við aðra, til dæmis hárgreiðslufólk, áfram að bera grímu. Þrjú til fjögur afbrigði „á radarnum“ Breytingarnar eru í fullkomnu samræmi við tillögur sóttvarnalæknis og að sögn Svandísar var samhljómur um þær á ríkisstjórnarfundi. „Það eru alltaf einhverjir sem vilja ganga lengra, einverjir sem vilja ganga skemur, einhver sem vill ræða grímunotkun, ræða fjarlægðir,“ sagði Svandís um samtal ráðherra. Spurð að því hvort kúrfan færi ekki bara upp aftur í kjölfar afléttinga vitnaði Svandís í sóttvarnalækni og sagði um að ræða varfærin skref. Hún sagði í raun lítið í samfélaginu sem væri háð takmörkunum en á radarnum væru þrjú eða fjögur afbrigði sem þyrfti að fylgjast með. Hún sagði það mikla breytingu fyrir leikhús og aðra svipaða starfsemi að geta nú haft 500 manns í sama hólfi og sömuleiðis fyrir það sem væri kallað „djammið“. Spurð um hættuna af djamminu benti hún á að bylgjurnar hefðu gjarnan byrjað þar. Breytingar á samkomutakmörkunum frá og með 15. september til 6. október - Almennar fjöldatakmarkanir verða 500 manns. Börn fædd 2006 og síðar verða nú undanþegin fjöldatakmörkunum og telja því ekki í hámarksfjölda. - Hámarksfjöldi á hraðprófsviðburðum verður 1.500 manns - Hraðprófsviðburðir geta verið standandi með 1 metra reglu (gríma ef 1 metra verður ekki viðkomið) - Séu þeir sitjandi þarf ekki að viðhafa 1 metra og ekki hafa grímu. - Áfram verður skylt að halda skrá yfir gesti en ekki skrá í sæti. - Nálægðartakmörkun verður almennt óbreytt 1 metri nema á sitjandi viðburðum og á skólaskemmtunum. - Grímuskylda verður að mestu óbreytt, þ.e. hafa þarf grímu innandyra þegar ekki er unnt að viðhafa 1 metra fjarlægð. - Veitingastaðir, þar sem heimilaðar eru áfengisveitingar, geta haft opið klukkustund lengur, til kl. 00.00 og tæma þarf staðina fyrir kl. 01.00. - Grunn- og framhaldsskólum verður gert heimilt að halda samkomur fyrir nemendur fyrir allt að 1.500 gesti að því gefnu að þeir framvísi neikvæðu hraðprófi sem ekki má vera eldra en 48 klst. gamalt. Ekki verður gerð krafa um nálægðatakmörk eða grímuskyldu, en skylt verður að skrá gesti. Horfa til samstarfs við einkaaðila Ráðherra sagði útfærslu hraðprófanna lokið en skipuleggjendur hefðu kallað eftir því að boðið yrði upp á hraðprófin víðar en bara á Suðurlandsbraut og verið væri að skoða hvernig mætti koma til móts við þær óskir, meðal annars með samstarfi við einkaaðila. Svandís sagið sérstakan tíma framundan en sú reglugerð sem nú tæki gildi myndi ganga úr gildi eftir kosningar og í öðru umhverfi. Sömu sóttvarnalög yrðu hins vegar í gildi og sama ferli. Hún sagði það gæfu landsmanna að hlusta á það sem sóttvarnalæknir hefði haft fram að færa, jafnvel þótt menn hefðu haft misjafnar skoðanir. Samtalið um sóttvarnaaðgerðirnar hefði verið opið og sóttvarnalæknir hlustað á ólíkar raddir en látið heilsu og líf sæta forgangi. Ráðherra sagðist ekki geta spáð um framhaldið, hvort 500 manna fjöldatakmörkin væru komin til að vera. Það kæmi í ljós á næstu vikum og mánuðum hvernig tækist að halda faraldrinum í skefjum en hún teldi óhætt að horfa bjartsýnum augum fram á veginn.
Breytingar á samkomutakmörkunum frá og með 15. september til 6. október - Almennar fjöldatakmarkanir verða 500 manns. Börn fædd 2006 og síðar verða nú undanþegin fjöldatakmörkunum og telja því ekki í hámarksfjölda. - Hámarksfjöldi á hraðprófsviðburðum verður 1.500 manns - Hraðprófsviðburðir geta verið standandi með 1 metra reglu (gríma ef 1 metra verður ekki viðkomið) - Séu þeir sitjandi þarf ekki að viðhafa 1 metra og ekki hafa grímu. - Áfram verður skylt að halda skrá yfir gesti en ekki skrá í sæti. - Nálægðartakmörkun verður almennt óbreytt 1 metri nema á sitjandi viðburðum og á skólaskemmtunum. - Grímuskylda verður að mestu óbreytt, þ.e. hafa þarf grímu innandyra þegar ekki er unnt að viðhafa 1 metra fjarlægð. - Veitingastaðir, þar sem heimilaðar eru áfengisveitingar, geta haft opið klukkustund lengur, til kl. 00.00 og tæma þarf staðina fyrir kl. 01.00. - Grunn- og framhaldsskólum verður gert heimilt að halda samkomur fyrir nemendur fyrir allt að 1.500 gesti að því gefnu að þeir framvísi neikvæðu hraðprófi sem ekki má vera eldra en 48 klst. gamalt. Ekki verður gerð krafa um nálægðatakmörk eða grímuskyldu, en skylt verður að skrá gesti.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Heilbrigðismál Heilsugæsla Samkomubann á Íslandi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Innlent Fleiri fréttir „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Sjá meira