68 mörk skoruð í Íslendingaslag

Elvar Örn Jónsson
Elvar Örn Jónsson Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson

Skjern vann Holsterbro í markaleik í efstu deild danska handboltans í kvöld 37:31. 

Með sigrinum fór Skjern upp fyrir Holsterbro og er með 11 stig en Holsterbro 10 stig í 5. sæti. 

Álaborg er í efsta sæti með 15 stig, GOG með 12 stig og Mors-Thy með 11 eins og Skjern. 

Elvar Örn Jónsson leikur með Skjern og Óðinn Þór Ríkharðsson með Holsterbro. Elvar skoraði 3 mörk í leiknum og Óðinn 1 mark. Gamla brýnið Anders Eggert í vinstra horninu hjá Skjern var markahæstur með 10 mörk og því hefur Óðinn væntanlega ekki átt náðugan dag í hægra horninu hjá Holsterbro. 

Óðinn Þór Ríkharðsson
Óðinn Þór Ríkharðsson Haraldur Jónasson/Hari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert