Stórleikur Elvars dugði ekki til

Elvar Ásgeirsson.
Elvar Ásgeirsson. Ljósmynd/Grand Nancy Métropole

Elvar Ásgeirsson fór á kostum með liði Nancy þegar það mátt þola stórt tap, 32:39, gegn Créteil í frönsku 1. deildinni í handknattleik karla í dag.

Elvar skoraði sex mörk og lagði upp önnur fjögur fyrir liðsfélaga sína en markvarslan hjá Nancy í dag var hreint út sagt skelfileg, þar sem markverðirnir vörðu samtals aðeins sex skot í öllum leiknum.

Því fór góður sóknarleikur liðsins fyrir lítið, en Elvar kom samtals að flestum mörkum allra í leiknum, tíu talsins, þó Valentin Aman hjá Créteil hafi verið markahæstur með sjö mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert