fbpx
Sunnudagur 05.maí 2024
433Sport

Pepsi Max deild kvenna: Breiðablik á toppinn eftir stórsigur á ÍBV

Ísak Gabríel Regal
Þriðjudaginn 20. júlí 2021 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslandsmeistarar Breiðabliks sitja á toppnum eftir 7-2 stórsigur á ÍBV í Pepsi-Max deild kvenna í kvöld.

Heiðdís Lillýardóttir gerði fyrsta markið á 5. mínútu áður en að Chloé Nicole Vande Velde tvöfaldaði forystuna fyrir Blika sjö mínútum síðar. Þóra Björg Stefánsdóttir minnkaði muninn fyrir ÍBV á 20. mínútu með marki úr vítaspyrnu en Heiðdís var svo aftur á ferðinni á 33. mínútu þegar hún skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu frá Áslaugu Mundu. Hanna Kallmeier minnkaði muninn í 3-2 með skalla úr aukaspyrnu en Hildur Antonsdóttir bætti við fjórða markinu fyrir Blika átta mínútum síðar.

Selma Sól Magnúsdóttir bætti svo við fimmta markinu á 83. mínútu. Hin stórefnilega Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir bætti við sjötta markinu á 90. mínútu og Hildur Antonsdóttir kórónaði sigur Breiðabliks á 92. mínútu með öðru marki sínu í leiknum. Niðurstaða 7-2 sigur Breiðabliks.

Breiðablik situr á toppi deildarinnar, einu stigi á undan Val með 24 stig eftir 11 leiki, en Valur á leik til góða gegn Þrótti R. seinna í kvöld.

Í öðrum leikjum kvöldsins gerðu Selfoss og Þór/KA 1-1 jafntefli og Tindastóll vann 2-1 sigur á Fylki.

Karen María Sigurgeirsdóttir kom Þór/KA yfir á 34. mínútu. Eva Núra Abrahamsdóttir jafnaði fyrir heimamenn á 80. mínútu. Selfoss situr í 3. sæti með 18 stig eftir 11 leiki. Þór/KA situr í 6. sæti með 13 stig.

Murielle Tiernan kom Tindastól yfir á 7. mínútu. Laura-Roxana Rus tvöfaldaði forystuna á 27. mínútu. Helena Ósk Hálfdánardóttir minnkaði muninn á 67 mínútu en Fylki tókst ekki að jafna metin.

Fylkir situr á botni deildarinnar með 9 stig eftir 11 leiki. Tindastóll er í 8. sæti með 11 stig.

Lokatölur:

Breiðablik 7 – 2 ÍBV
1-0 Heiðdís Lillýardóttir (‘5)
2-0 Chloé Nicole Vande Velde (’12)
2-1 Þóra Björg Stefánsdóttir (’20)
3-1 Heiðdís Lillýardóttir (’33)
3-2 Hanna Kallmaier (’64)
4-2 Hildur Antonsdóttir (’72)
5-2 Selma Sól Magnúsdóttir (’83)
6-2 Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir (’90)

7-2 Hildur Antonsdóttir (’92)

Tindastóll 2 – 1 Fylkir
1-0 Murielle Tiernan (‘7)
2-0 Laura-Roxana Rus (’27)
2-1 Helena Ósk Hálfdánardóttir (’67)

Selfoss 0 – 1 Þór/KA
0-1 Karen María Sigurgeirsdóttir (’34)
1-1  Eva Núra Abrahamsdóttir (’80)

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Gagnrýnir vinnubrögð Liverpool: Bjóst við að fá miklu meiri stuðning – ,,Var gríðarlega erfitt“

Gagnrýnir vinnubrögð Liverpool: Bjóst við að fá miklu meiri stuðning – ,,Var gríðarlega erfitt“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Hrafnkell: „Ég er ekki sammála þessu“

Hrafnkell: „Ég er ekki sammála þessu“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Út af þessu hafi hrun Liverpool ekki komið á óvart

Út af þessu hafi hrun Liverpool ekki komið á óvart
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Peysan umtalaða er til sölu á um 120 þúsund krónur – Vakti mikla athygli í þáttunum

Peysan umtalaða er til sölu á um 120 þúsund krónur – Vakti mikla athygli í þáttunum
433Sport
Í gær

Ipswich spilar í ensku úrvalsdeildinni – Voru nýkomnir í næst efstu deild

Ipswich spilar í ensku úrvalsdeildinni – Voru nýkomnir í næst efstu deild
433Sport
Í gær

Ratcliffe sendi starfsfólki United tölvupóst – Segir stöðuna vera til skammar

Ratcliffe sendi starfsfólki United tölvupóst – Segir stöðuna vera til skammar
433Sport
Í gær

Búinn að vinna gullhanskann eftir leikinn í gær

Búinn að vinna gullhanskann eftir leikinn í gær
433Sport
Í gær

Fyrirliði Real Madrid yfirgefur félagið – Vill aðeins semja í einu landi

Fyrirliði Real Madrid yfirgefur félagið – Vill aðeins semja í einu landi