Sjö brot gegn sóttkví og einangrun: Grunur um að sá sem kom af stað hópsmiti hafi virt einangrun að vettugi Nadine Guðrún Yaghi skrifar 19. apríl 2021 18:28 Frá áramótum hafa 380 tilkynningar borist lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um mögulegt brot gegn sóttvarnarreglum. Vísir/Vilhelm Grunur leikur á að sá sem kom af stað hópsmiti á leikskólanum Jörfa í Reykjavík hafi bæði brotið gegn skyldu um sóttkví og einangrun með þeim afleiðingum að yfir hundrað fjölskyldur eru komnar í sóttkví. Sjö brot gegn sóttkví og einangrun hafa verið skráð frá áramótum.
Frá áramótum hafa 380 tilkynningar borist lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um mögulegt brot gegn sóttvarnarreglum. „Þetta eru brot á einangrun og sóttkví og svo sóttvörnum,“ segir Guðmundur Páll Jónsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Lögregla kanni allar ábendingar sem berist. Sjö brot gegn sóttkví og einangrun hafa verið skráð frá áramótum. Tveir eru grunaðir um að hafa brotið skyldur sínar í sóttkví, fjórir um að hafa ekki farið í sóttkví og einn um að hafa ekki verið í einangrun þrátt fyrir staðfest smit. Guðmundur Páll Jónsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að lögregla bregðist við öllum tilkynningum um brot gegn sóttvarnalögum.VÍSIR/ARNAR HALLDÓRSSON Átti að vera í einangrun Heimildir fréttastofu herma að sá sem kom af stað hópsmiti á leikskólanum Jörfa, þar sem 36 smit hafa verið staðfest, sé grunaður um að hafa brotið gegn skyldu sinni að fara í sóttkví við komuna til landsins um síðustu mánaðarmót og einnig eftir að hann hafði verið greindur með sjúkdóminn í seinni sýnatöku og átti að vera í einangrun. Guðmundur Páll segir lögreglu hafa brugðist við um leið og grunur vaknaði um að smitaður einstaklingur væri ekki í einangrun. „Við gripum bara í taumana um leið og við fréttum af þessu,“ segir Guðmundur Páll en þá virðast smitin hafa verið búin að dreifa sér. Öll smitin sem greindust um helgina tengjast tveimur aðilum sem komu hingað til lands og fylgdu ekki reglunum með þeim afleiðingum að yfir hundrað fjölskyldur eru komnar í sóttkví. Í viðtali á Vísi í dag sagði Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, ljóst að Íslendingar af erlendu bergi brotnir ættu í meiri erfiðleikum með að halda sóttkvíarreglurnar en aðrir. Finna þurfi leið til að takast á við vandann. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnardeild ríkislögreglustjóra benti á það á upplýsingafundi almannavarna í dag að fólk ætti ekki að dæma alla eftir hegðun fárra, þó sú hegðun hafi miklar afleiðingar. Guðmundur Páll segir að allir sem brotið hafa sóttkví og einangrun séu kallaðir í skýrslutöku „um leið og fólkið má fara út úr húsi og síðan fer þetta mál bara til ákærusviðs og í sekt.“ 33 brot gegn sóttvörnum hafa verið skráð frá áramótum. Slík brot fela aðallega í sér brot á sóttvarnalögum, til dæmis þar sem skemmti- eða veitingastaðir fylgja ekki reglunum eða of fjölmennir hópar koma saman miðað við reglugerð stjórnvalda.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Lögreglumál Tengdar fréttir Ekki tekist að byggja brú til pólska samfélagsins Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir stöðuna í samfélaginu þegar kemur að fjölda kórónuveirusmita nú vera ógnvænlega. 19. apríl 2021 11:29 Gripu strax til aðgerða en fengu litlar upplýsingar Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hvetur fólk til þess að dæma ekki alla vegna hegðunar fárra, jafnvel þótt sú hegðun hafi alvarlegar afleiðingar. 44 greindust með Covid-19 og má rekja smitin til aðila sem kom hingað til lands og sinnti ekki sóttkví. 19. apríl 2021 12:15 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Fleiri fréttir Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Sjá meira
Ekki tekist að byggja brú til pólska samfélagsins Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir stöðuna í samfélaginu þegar kemur að fjölda kórónuveirusmita nú vera ógnvænlega. 19. apríl 2021 11:29
Gripu strax til aðgerða en fengu litlar upplýsingar Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hvetur fólk til þess að dæma ekki alla vegna hegðunar fárra, jafnvel þótt sú hegðun hafi alvarlegar afleiðingar. 44 greindust með Covid-19 og má rekja smitin til aðila sem kom hingað til lands og sinnti ekki sóttkví. 19. apríl 2021 12:15