Talíbanar firra sig ábyrgð á mannskæðri árás Vésteinn Örn Pétursson skrifar 21. nóvember 2020 10:28 Eins og sjá má ollu árásirnar talsverðri eyðileggingu. Haroon Sabawoon/Anadolu Agency via Getty
Minnst átta létust og 30 særðust eftir eldflaugaárás á íbúðahverfi í Kabúl, höfuðborg Afganistan. Stutt er í að fulltrúar Bandaríkjastjórnar og Talíbana haldi friðarviðræður, en Talíbanar hafna því að bara ábyrgð á árásinni. Breska ríkisútvarpið hefur eftir innanríkisráðuneyti Afganistan að um 20 skeytum hafi verið skotið inn í íbúðarhverfi úr tveimur bílum í morgun. Talsverðar skemmdir urðu á þó nokkrum byggingum og bílum. Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, mun síðar í dag funda með fulltrúum Talíbana í Doha, höfuðborg Katar, með það fyrir augum að ná árangri í yfirstandandi friðarviðræðum. Fyrr í þessari viku tilkynnti stjórn Donalds Trumps, fráfarandi Bandaríkjaforseta, um að kalla ætti 2.000 bandaríska hermenn heim frá Afganistan fyrri miðjan janúar. Ákvörðunin hefur verið gagnrýnd þar sem sérfræðingar hafa áhyggjur af því að takmörkuð viðvera bandaríska hersins í Afganistan myndi draga úr getu þarlendra stjórnvalda til að verjast uppgangi Talíbana og annarra herskárra sveita á svæðinu. Eldflaugarnar lentu í mið- og norðurhluta Kabúl, meðal annars nálægt svæði sem hýsir sendiráð og alþjóðleg fyrirtæki. Samkvæmt tilkynningu frá íranska sendiráðinu urðu skemmdir á húsnæði þess, en engan sakaði. Í yfirlýsingu höfnuðu Talíbanar því að bera ábyrgð á árásinni og sögðust ekki „skjóta blint á opinbera staði.“ BBC greinir frá því að hópur tengdur Íslamska ríkinu, eða ISIS, beri ábyrgð á tveimur árásum í Kabúl á síðustu vikum, þar sem hátt í 50 létu lífið.
Afganistan Bandaríkin Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent Vann fimmtíu milljónir króna Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent Tvö innbrot á heimili og líkamsárás með kylfu og piparúða Innlent Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Innlent Lýsa eftir Sigurði Fannari Innlent Fleiri fréttir Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Aftur barist í norðurhluta Gasa á meðan þúsundir flýja Rafah Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Pútín skiptir um varnarmálaráðherra Fjölbýlishús hrundi í Belgorod Fyrsti lifandi svínsnýrnaþeginn er látinn Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Hundruð létust í flóðum Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Sjá meira