Salvör Nordal, umboðsmaður barna, segir mikla fjölgun barna á biðlista hjá Geðheilsumiðstöðunni vera áhyggjuefni, en að jafnframt sé jákvætt að sjá að dregið hafi úr biðlistum hjá Barna- og unglingageðdeild Landspítalans, BUGL, og hjá sálfræðingum Heilsugæslunnar.
Í liðinni viku birti umboðsmaður barna upplýsingar um bið barna eftir þjónustu tiltekinna aðila. Segir Salvör markmiðið með birtingu upplýsinganna vera að varpa ljósi á raunverulega stöðu barna í íslensku samfélagi.
„Við byrjuðum að birta þessar tölur tvisvar á ári vegna þess að bið eftir allskyns þjónustu hefur verið viðvarandi vandi. Það er mikilvægt að við erum að birta þetta reglulega og þannig fylgjumst við með þróuninni,“ segir Salvör og bætir við að þannig sé hægt að meta hvort biðlistarnir séu í raun að lengjast.
Viðtalið má lesa í heild sinni í Morgunblaðinu í dag, mánudag.