Rökuðu hárið af manni með hrossaklippum en brotið fyrnt Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 27. október 2020 20:47 Lýsingarnar í ákærunni þóttu hrottalegar. Getty
Fimm manna hópur var í dag sýknaður í Héraðsdómi Suðurlands af því að hafa ruðst inn á heimili manns og rakað af honum mest allt hár á höfði hans og framan af augnabrúnum með rafmagnsknúnum hrossaklippum og rafmagnsrakvél. Héraðsdómur taldi sannað að minnst fjórir úr hópnum hafi ruðst inn á heimili mannsins og hárið hafi verið rakað af manninu. Dómurinn taldi brotin hins vegar fyrnd. Fimmenningarnir voru ákærðir fyrir að hafa þann 11. ágúst 2016 ráðist inn á heimili mannsins, veist að honum með ofbeldi þar sem hann lá sofandi í rúmi sínu. Fjórum var gefið að sök að hafa haldið honum nauðugum á meðan sá fimmti rakaði rakaði mest allt hárið af höfði hans og framan af augabrúnum, með rafmagnsknúnum hrossaklippum og rafmagnsrakvél sem ákærðu höfðu meðferðis. Hópurinn samanstóð af fjórum konum og einum karlmanni. Neituðu sök og könnuðust ekki við að hafa beitt manninn ofbeldi Þau voru einnig ákærð fyrir ólögmæta nauðung og kynferðislega áreitni gegn manninum. Var þremur af þeim gefið að sök að hafa haldið manninum niðri á meðan sá fjórði dró buxur hans niður fyrir rass og tróð rakvélinni á milli rasskinna mannsins, að endaþarmsopi hans, þar sem hún var skilin eftir í gangi. Maðurinn sem ráðist var á hlaut hrufl og nokkur grunn sár í hársverði á nokkrum stöðum, grunn sár og bólgu á enni, mar á hægri olnboga og í kringum báða úlnliði, stirðleika í hálsi, eymsli við endaþarm auk þess sem að hann missti nærri allt hárið af höfði sér. Málið má rekja til ósættis sem varð eftir að maðurinn hafi eytt nóttinni með 18 ára gamalli stúlku, eins og það er orðað í dóminum. Var það sagt hafa lagst illa í vinkonur hennar og samtarfskonur. Hálfum mánuði síðar sagðist hann hafa vaknað við það að átta manns voru komnir inn í svefnherbergi til hans með umræddum afleiðingum. Taldi hann þá fimm sem ákærðir voru hafa verið að verki. Fimmenningarnir neituðu allir sök og könnuðust þeir ekki við að einhvers konar handalögmál hafi átt sér stað eða að hár hafi verið rakað af manninum. Í niðurstöðu héraðsdóms segir að telja verði sannað að minnst fjórir af þeim fimm sem voru ákærðir í málinu hafi ráðist inn til mannsins umrætt kvöld. Þá sé óumdeilanlegt að hárið hafi verið rakað af manninum og að telja verði að engum öðrum sé til að dreifa sem þar hafi getað átt hlut að máli nema fjórum af þeim fimm sem ákærðir voru. Brotin fyrnd og kynferðisleg áreitni ósönnuð Dómurinn taldi þessi brot þó vera fyrnd þar sem fjögur ár hafi liðið frá því að þau voru framin en ákæra var gefin út í fyrra. Þá þótti héraðsdómi ósannað að fimmenningarnir hafi gert sekir um kynferðsilega áreitni gegn manninum. Var hópurinn því sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins í málinu.
Dómsmál Tengdar fréttir Hrottalegar lýsingar í sakamáli á Suðurlandi Fjórar konur og einn karlmaður hafa verið ákærð fyrir ólögmæta nauðung, húsbrot og kynferðislega áreitni fyrir að hafa ruðst óboðin inn á heimili manns og veist að honum með ofbeldi þar sem hann lá sofandi í rúmi sínu. Grófu ofbeldi er lýst í ákærunni. 25. september 2020 09:56 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Innlent Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Innlent Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Erlent Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Erlent Fannst hennar tími vera kominn Innlent Miðflokkurinn staðfestir sig sem þriðji stærsti flokkurinn Innlent Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Erlent Eitruð blanda þegar spilling og skipulagsmál fara saman Innlent Þátttaka nemenda í „verkföllum“ skráð sem „óheimil fjarvist“ Innlent Fleiri fréttir Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland? Þátttaka nemenda í „verkföllum“ skráð sem „óheimil fjarvist“ Eitruð blanda þegar spilling og skipulagsmál fara saman Ofbeldisbrotum fjölgar á sama tíma og lögreglumönnum fækkar Landeigendur höfða mál gegn ríkinu vegna Hvammsvirkjunar Fannst hennar tími vera kominn Sakar ríkisstjórnina um að ætla að afhenda fiskeldinu firðina til eilífðar Miðflokkurinn staðfestir sig sem þriðji stærsti flokkurinn Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Ákærð fyrir að hafa orðið syni sínum að bana Stórfjölgun ofbeldisbrota, firðir í hættu og hönnunarstuldur „Við næðum eflaust meiri árangri ef borgarstjóri myndi væla minna“ Össur segir Jóni Gnarr að „hætta að væla“ Staðfesta gæsluvarðhald tveggja sakborninga Óbreytt frumvarp þýði útrýmingu villta laxins Fluttur á sjúkrahús eftir að ekið var á Útlendingastofnun Húsfélagið má ekki klippa á tengil rafvirkjameistara Sjálfstæðisflokkurinn kvelji barnafólk með vettlingagjörningi Enn kröftugt gos úr einum gíg Börn sofi ekki úti í gosmóðunni suðvestanlands Velkomin í Verbúðina II Halla Hrund fjórfaldar fylgi sitt á milli kannanna Ákærðir fyrir þaulskipulagða skotárás gegn feðginum á aðfangadag Sextán hundruð vettlingar fyrir börnin sem bíða Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði Aðstoðarrektor í Bandaríkjunum verður rektor Háskólans á Akureyri Bjarni vill taka daginn snemma Svona var Pallborðið með Höllu, Katrínu og Steinunni Ólínu Freista þess að halda veitingamanninum bak við lás og slá Sjá meira
Hrottalegar lýsingar í sakamáli á Suðurlandi Fjórar konur og einn karlmaður hafa verið ákærð fyrir ólögmæta nauðung, húsbrot og kynferðislega áreitni fyrir að hafa ruðst óboðin inn á heimili manns og veist að honum með ofbeldi þar sem hann lá sofandi í rúmi sínu. Grófu ofbeldi er lýst í ákærunni. 25. september 2020 09:56