Sprungan stækkað en óhætt að fara á svæðið

Hreinsunarstarf hefur verið unnnið undanfarna daga.
Hreinsunarstarf hefur verið unnnið undanfarna daga. Ljósmynd/Almannavarnir

Athugun skriðusérfræðinga á stækkunar sprungu sem myndaðist vegna skriðufalla á Seyðisfirði þann 18. desember er lokið. Ester Hlíðar Jenssen, skriðusérfræðingur hjá Veðurstofunni, segir að mælitæki hafi ekki sýnt neina hreyfingu á fleka sem óttast er að fari af stað. Hins vegar sýndu myndir úr vefmyndavél að sprungan hafði stækkað.  

„Speglamælingar okkar sýndu enga breytingu en sjáum hins vegar á ljósmyndum úr vefmyndavél að sprungan hefur lengst. Hins vegar hefur flekinn sem fylgst er með ekki hreyfst,“ segir Esther. 

Sprungan hafði stækkað en ekki var hreyfing á flekum.
Sprungan hafði stækkað en ekki var hreyfing á flekum. Ljósmynd/Almannavarnir

Hún segir að drónamyndir muni skýra betur hversu mikið sprungan hefur lengst. Vinna við hreinsunarstarf var stöðvuð á svæðinu undir skriðufallinu á meðan athugun fór fram. 

Segir Esther ennfremur að nú sé heimilt sé að fara inn á svæðið sem var rýmt í dag. Náði hún eingöngu til verktaka sem sinna hreinsunarstarfinu. Hús á svæðinu undir skriðuföllunum sem féllu í desember eru áfram mannlaus. 

Hreinsunarstarf var stöðvað um tíma á Seyðisfirði.
Hreinsunarstarf var stöðvað um tíma á Seyðisfirði.

Uppfært: 16:32

Lögreglan á Austurlandi hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu vegna stöðu mála á Seyðisfirði og Eskifirði. 

Seyðisfjörður:

„Af öryggisástæðum var hreinsunarvinnu innan áhrifasvæðis skriðunnar sem féll 18. desember stöðvuð rétt fyrir hádegi í dag.  Það var gert eftir að tilkynning barst um að sprunga í skriðusárinu hefði stækkað. Auk þess ákvaðu stjórnendur síldarvinnslunnar á Seyðisfirði að stöðva vinnslu.  Eftir yfirferð ofanflóðavaktar Veðurstofu Íslands, á fjarlægðarmælingum á speglum, var ljóst að ekki var um hreyfingar á jarðlögum að ræða en við vettvangskönnun var ljóst að hrunið hafði úr börmum sprungunnar og hún orðið greinilegri.  Ekki var því talin frekari hætta á skriðuföllum út frá þessum athugunum. 

Talsverðri úrkomu er spáð á Seyðisfirði eftir miðnætti aðfaranótt laugardags. Dregur úr úrkomuákefð eftir kl. 15 síðdegis á laugardag. Spáð uppsafnaðri úrkoma á þeim tíma, um 50 mm. Byrjar mögulega sem slydda fyrsta klukkutímann. Hlýnar heldur en megnið af tímanum verður slydda yfir 200 m og snjókoma yfir 300 m. Hlýnar svo eftir hádegi á laugardag og fer snjólína upp í 800-900 m. Áfram dálítil væta seinnipartinn á laugardag og á sunnudag, um 15 mm uppsafnað er spáð á þeim tíma.

Vegna úrkomunnar á laugardag kann að koma til frekari rýminga á Seyðisfirði. Staðan verður endurmetin á morgun og kynnt,“ segir í tilkynningu. 


Eskifjörður:

„Úrkoman byrjar um miðnætti seint á föstudagskvöld og dregur úr úrkomuákhefð um kl. 14 á laugardag. Spáð uppsöfnuð úrkoma um 35 mm á þessum tíma. Heldur hlýrra en á Seyðisfirði, slyddu- og snjólína um 50-100 m hærri á Eskifirði. Áframhaldandi uppsöfnuð úrkoma frá seinnipartinum á laugardegi fram á sunnudagskvöld eru um 10 mm í spám,“ segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka