Mótsmiðasala fyrir undankeppni EM hefst í dag

Leikmenn Íslands fagna marki.
Leikmenn Íslands fagna marki. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Mótsmiðasala á heimaleiki Íslands í undankeppni EM 2024 í knattspyrnu karla hefst í dag klukkan 12 á hádegi.

Mótsmiðasala felur í sér miða á alla fimm heimaleiki Íslands í ár og fer fram á tix.is.

Ísland hefur leik í undankeppninni í mars og verður fyrsti heimaleikurinn spilaður á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Með Íslandi í riðli eru Slóvakía, Portúgal, Bosnía og Hersegóvína, Lúxemborg og Liechtenstein. Mótsmiðar gilda á alla heimaleiki Íslands í keppninni.

Með kaupum á mótsmiða fæst 20 prósenta afsláttur af miðum í almennri miðasölu. Vakin er athygli á fleiri og fjölbreyttari verðflokkum á landsleiki á Laugardalsvelli en áður. Nú er hægt að kaupa miða í fimm verðflokkum, sem fyrr með 50 prósenta afslætti fyrir 16 ára og yngri.

Miðakaupendur fá sömu sætin á alla fimm leikina og er hægt að fá miða allt frá 8.800 krónum til 36.400 á alla fimm leikina. Mótsmiðasölu lýkur miðvikudaginn 17. maí klukkan 12.

Almenn miðasala á stakan leik hefst tveimur vikum fyrir hvern leik.

Heimaleikir Íslands í undankeppni EM 2024:

Ísland – Slóvakía, laugardaginn 17. júní kl. 18.45
Ísland – Portúgal, þriðjudaginn 20. júní kl. 18.45
Ísland – Bosnía og Hersegóvína, mánudaginn 11. september kl. 18.45
Ísland – Lúxemborg, föstudaginn 13. október kl. 18.45
Ísland – Liechtenstein, mánudaginn 16. október kl. 18.45

Nánari upplýsingar um mótsmiðasöluna má finna á heimasíðu KSÍ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert