Vill grafa stríðsöxina eftir leiðindi á milli liðsfélaga Sindri Sverrisson skrifar 20. september 2021 17:01 Bryson DeChambeau hefur unnið eitt risamót á ferlinum; Opna bandaríska í fyrra. Getty/Sam Greenwood Þjálfari Brysons DeChambeau segir að kylfingurinn vilji sættast við Brooks Koepka, liðsfélaga sinn í bandaríska landsliðinu sem mætir úrvalsliði Evrópu í Ryder-bikarnum í golfi um helgina. Rekja má ósætti DeChambeu og Koepka aftur til ársins 2019 þegar sá síðarnefndi gagnrýndi DeChambeau fyrir að spila of hægt. DeChambeau gerði svo grín að líkamlegu atgervi Koepka, sagði hann skorta magavöðva, og Koepka svaraði því með því að viðurkenna að hann vantaði tvo risatitla til að eiga „sixpack“. You were right @b_dechambeau I am 2 short of a 6 pack! pic.twitter.com/aCJ1jimId6— Brooks Koepka (@BKoepka) January 16, 2020 Enn jókst rígurinn á milli þeirra þegar brot úr viðtali við Koepka var birt, þar sem hann ranghvolfdi augunum allsvakalega eftir að DeChambeau hafði gengið framhjá honum. Fleiri dæmi mætti nefna. View this post on Instagram A post shared by Breezy Golf (@breezygolf) Steve Stricker, liðsstjóri bandaríska liðsins, hefur gert sitt til að fá liðsmenn sína til að sættast nú þegar Ryder-bikarinn er að hefjast á föstudaginn. Mike Schy, þjálfari DeChambeau, segir sinn mann vilja grafa stríðsöxina. „Hvort sem að þeir hafa báðir verið að gera þetta til að auka áhugann á sér um heiminn eða ekki, þá vill Bryson að þessu ljúki,“ sagði Schy í viðtali við the Times í dag. „Höldum áfram. Þegar allt kemur til alls þá eru þetta tveir miklir egóistar,“ sagði Schy en fullyrti þó að DeChambeau, sem leikur nú í annað sinn í Ryder-bikarnum, kynni afskaplega vel við að spila í þessari liðakeppni: „Hann elskar liðakeppni. Stundum, þegar það gengur illa, getur hann litið út fyrir að vera svolítið að hugsa bara um sjálfan sig en raunin er sú að hann gerir sitt allra besta til að leggja eitthvað af mörkum.“ Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum. Golf Ryder-bikarinn Mest lesið Óskar hafi sett stjórninni afarkosti Fótbolti Brotthvarf Óskars „eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Fótbolti Óskar Hrafn hættur hjá Haugesund Fótbolti Fjórtán ára strákur með Man City klásúlu í samningi sínum við annað félag Enski boltinn „Erum ekki á góðum stað sem fótboltalið í augnablikinu“ Fótbolti Bláa flautan hjálpar bæði foreldrum og þjálfurum Íslenski boltinn Dortmund fær meira fyrir að tapa en vinna úrslitaleikinn Fótbolti Óskar verði sjálfur að svara fyrir ákvörðun sína Fótbolti Hóta því að lögsækja FIFA Fótbolti Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tiger og Rory fá rosalega hollustubónusa Rory McIlroy fordæmir falsfrétt „Hann hefur sjokkerað allan heiminn“ Fær miklu meira borgað fyrir sigur á Masters í ár en fyrir tveimur árum „Með betri stjórn á tilfinningunum mínum en nokkurn tímann áður“ Scheffler í sérflokki á Masters Ekkert fær Scheffler stöðvað Tiger Woods spilar samhliða áhugamanni eftir erfiðan gærdag Degi þrjú lokið: Scheffler enn á toppnum þrátt fyrir tvöfaldan skolla Scheffler efstur á meðan Woods fellur neðar og neðar Reiddist áhorfendum eftir þrefaldan skolla: „F**k off“ Þrír á toppnum eftir dag tvö Metið innan seilingar hjá Tiger Woods Tiger þarf að spila 23 holur í dag Útsendingin frá Mastersmótinu byrjar 11.45 í dag Danski tvíburinn sló óvænt í gegn fyrir myrkur „Það verður hátíð næstu daga“ Það sem þú þarft að vita fyrir Masters mótið sem byrjar í dag Líklegastur til að vinna en vill frekar vera viðstaddur fæðinguna McIlroy upp með sér vegna orða Tigers Bernard Langer frestar kveðjustundinni á Masters um eitt ár Ofurtölvan hefur litla trú á Rory McIlroy á Mastersmótinu Neitar að gefast upp en bætir líklega ekki við glæsta ferilskrá Tiger setur met ef hann nær niðurskurðinum á Masters Tiger skrúfar fyrir allt kynlíf Fékk aðstoð frá fyrrum þjálfara Tigers en besta ráðið kom frá dótturinni Sjá meira
Rekja má ósætti DeChambeu og Koepka aftur til ársins 2019 þegar sá síðarnefndi gagnrýndi DeChambeau fyrir að spila of hægt. DeChambeau gerði svo grín að líkamlegu atgervi Koepka, sagði hann skorta magavöðva, og Koepka svaraði því með því að viðurkenna að hann vantaði tvo risatitla til að eiga „sixpack“. You were right @b_dechambeau I am 2 short of a 6 pack! pic.twitter.com/aCJ1jimId6— Brooks Koepka (@BKoepka) January 16, 2020 Enn jókst rígurinn á milli þeirra þegar brot úr viðtali við Koepka var birt, þar sem hann ranghvolfdi augunum allsvakalega eftir að DeChambeau hafði gengið framhjá honum. Fleiri dæmi mætti nefna. View this post on Instagram A post shared by Breezy Golf (@breezygolf) Steve Stricker, liðsstjóri bandaríska liðsins, hefur gert sitt til að fá liðsmenn sína til að sættast nú þegar Ryder-bikarinn er að hefjast á föstudaginn. Mike Schy, þjálfari DeChambeau, segir sinn mann vilja grafa stríðsöxina. „Hvort sem að þeir hafa báðir verið að gera þetta til að auka áhugann á sér um heiminn eða ekki, þá vill Bryson að þessu ljúki,“ sagði Schy í viðtali við the Times í dag. „Höldum áfram. Þegar allt kemur til alls þá eru þetta tveir miklir egóistar,“ sagði Schy en fullyrti þó að DeChambeau, sem leikur nú í annað sinn í Ryder-bikarnum, kynni afskaplega vel við að spila í þessari liðakeppni: „Hann elskar liðakeppni. Stundum, þegar það gengur illa, getur hann litið út fyrir að vera svolítið að hugsa bara um sjálfan sig en raunin er sú að hann gerir sitt allra besta til að leggja eitthvað af mörkum.“ Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum.
Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum.
Golf Ryder-bikarinn Mest lesið Óskar hafi sett stjórninni afarkosti Fótbolti Brotthvarf Óskars „eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Fótbolti Óskar Hrafn hættur hjá Haugesund Fótbolti Fjórtán ára strákur með Man City klásúlu í samningi sínum við annað félag Enski boltinn „Erum ekki á góðum stað sem fótboltalið í augnablikinu“ Fótbolti Bláa flautan hjálpar bæði foreldrum og þjálfurum Íslenski boltinn Dortmund fær meira fyrir að tapa en vinna úrslitaleikinn Fótbolti Óskar verði sjálfur að svara fyrir ákvörðun sína Fótbolti Hóta því að lögsækja FIFA Fótbolti Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tiger og Rory fá rosalega hollustubónusa Rory McIlroy fordæmir falsfrétt „Hann hefur sjokkerað allan heiminn“ Fær miklu meira borgað fyrir sigur á Masters í ár en fyrir tveimur árum „Með betri stjórn á tilfinningunum mínum en nokkurn tímann áður“ Scheffler í sérflokki á Masters Ekkert fær Scheffler stöðvað Tiger Woods spilar samhliða áhugamanni eftir erfiðan gærdag Degi þrjú lokið: Scheffler enn á toppnum þrátt fyrir tvöfaldan skolla Scheffler efstur á meðan Woods fellur neðar og neðar Reiddist áhorfendum eftir þrefaldan skolla: „F**k off“ Þrír á toppnum eftir dag tvö Metið innan seilingar hjá Tiger Woods Tiger þarf að spila 23 holur í dag Útsendingin frá Mastersmótinu byrjar 11.45 í dag Danski tvíburinn sló óvænt í gegn fyrir myrkur „Það verður hátíð næstu daga“ Það sem þú þarft að vita fyrir Masters mótið sem byrjar í dag Líklegastur til að vinna en vill frekar vera viðstaddur fæðinguna McIlroy upp með sér vegna orða Tigers Bernard Langer frestar kveðjustundinni á Masters um eitt ár Ofurtölvan hefur litla trú á Rory McIlroy á Mastersmótinu Neitar að gefast upp en bætir líklega ekki við glæsta ferilskrá Tiger setur met ef hann nær niðurskurðinum á Masters Tiger skrúfar fyrir allt kynlíf Fékk aðstoð frá fyrrum þjálfara Tigers en besta ráðið kom frá dótturinni Sjá meira
Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Íslenski boltinn
Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Íslenski boltinn