Öskubuskusaga Mpanzu sem fór með Luton úr utandeild í úrvalsdeild Aron Guðmundsson skrifar 28. maí 2023 07:01 Mpanzu í úrslitaleiknum með Luton Town í gær Vísir/Getty Öskubuskusaga Pelly-Ruddock Mpanzu, leikmanns Luton Town, er ein sú fallegasta í knattspyrnuheiminum um þessar mundir. Mpanzu er fyrsti og eini leikmaður sögunnar til þessa að fara með eina og sama liðinu úr ensku utandeildinni og upp í ensku úrvalsdeildina.
Luton Town tryggði sér í gær sæti í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili með sigri á Coventry City í úrslitaleik umspils ensku B-deildarinnar, leik sem fór alla leið í bráðabana í vítaspyrnukeppni. Téður Mpanzu lék sinn fyrsta aðalliðsleik fyrir Luton Town í ensku utandeildinni í desember árið 2013 gegn Alfreton. Síðan þá hefur hlutverk hans í liði Luton orðið stærra og stærra. Í gær var hann í byrjunarliði Luton í úrslitaleik umspilsins og úrslit leiksins gerðu það að verkum að hann hefur nú skrifað söguna. "I feel like I completed football." Luton Town's Pelly Ruddock Mpanzu is first player in history to play for the same club from the National League to the Premier League pic.twitter.com/6sjujVs7rG— Football Daily (@footballdaily) May 27, 2023 Þegar að Luton Town tryggði sig upp úr ensku D-deildinni árið 2018 hafði Mpanzu það á orði að það kæmi sér á óvart að hann væri enn hluti af liði félagsins. Hann bjóst aldrei við því að ná svona hátt á gæðastigi enskrar knattspyrnu. Mpanzu hefur nú leikið yfir 360 leiki fyrir Luton Town og mun á næsta tímabili fá tækifæri til þess að spreyta sig á móti nokkrum af bestu liðum knattspyrnuheimsins. Leikmaðurinn spilaði bróðurpart leikja Luton á nýafstöðnu tímabili, alls 33 leiki og skoraði hann í þeim leikjum þrjú mörk.
Enski boltinn Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Uppgjörið og viðtöl: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn De Zerbi hættir hjá Brighton Enski boltinn Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Fleiri fréttir Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Varamarkmaðurinn og Håland hetjurnar: Man City á toppinn fyrir lokaumferðina Sjá meira