Leikmaður Leicester hetjan gegn Salah og félögum

Kenneth Omeruo og Mo Salah eigast við í dag.
Kenneth Omeruo og Mo Salah eigast við í dag. AFP

Nígería hafði betur gegn Egyptalandi, 1:0, er landslið þjóðanna leiddu saman hesta sína á Afríkumótinu í fótbolta í Kamerún í dag.

Kelechi Iheanacho, framherji Leicester á Englandi, skoraði sigurmarkið á 30. mínútu er hann kláraði vel í teignum eftir sendingu frá Joe Aribo.

Mohamed Salah, fyrirliði Egypta og stjarna hjá Liverpool, fékk besta færi Egyptalands en Maduka Okoye í marki Nígeríu varði glæsilega frá honum á 71. mínútu.

Gínea-Bissá og Súdan mætast síðar í kvöld í sama riðli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka