Gestir Snaps gengu í störf eftir að þjónarnir löbbuðu út Eiður Þór Árnason skrifar 13. október 2021 14:01 Snaps Bistro Bar er í eigu Birgis Þórs Bieltvedt fjárfestis en eigendaskipti eru í farvatninu. Vísir/Vilhelm Nær allt starfslið veitingahússins Snaps við Óðinstorg hefur sagt starfi sínu lausu vegna víðtækrar óánægju með stjórnarhætti nýs rekstrarstjóra.
Í lok september sendu alls átta þjónar, vaktstjórar, barþjónar og kokkar inn uppsagnarbréf og hættu um mánaðamótin. Síðasta laugardag gengu svo þrír þjónar út á miðri vakt og hafa ekki snúið aftur til starfa. Að sögn fyrrverandi starfsmanna snýr óánægjan meðal annars að launakjörum, undirmönnun, lakri gæðastjórnun og alvarlegum samskiptavanda sem hafi allt komið til í kjölfar stjórnendaskiptanna. Enginn í hópnum hyggst vinna uppsagnarfrest sinn og hafa margir nú þegar ráðið sig í önnur störf. Segir allt í góðu á Snaps Þórir Helgi Bergsson, rekstrarstjóri Snaps, vildi lítið kannast við uppsagnirnar þegar leitað var eftir viðbrögðum. Stemmir það að þjónar hafi gengið út hjá þér á laugardaginn? „Nei, þetta er bara innanhúsmál sem við erum að fást við. Það er bara þannig, það er bara allt í góðu hér.“ En þú kannast samt sem áður við þetta? „Ég kannast bara við að það eru ákveðin … það er ekkert í gangi sko, ekkert til að setja í fréttir allavega.“ Þegar Þórir er spurður nánar út í það hvað átti sér stað á laugardag ítrekar hann að það sé einkamál. Veitingastaðurinn stendur við Óðinstorg.vísir/vilhelm Gestir komu starfsmönnum til aðstoðar Ákveðið var að halda veitingastaðnum opnum þrátt fyrir uppsagnirnar um síðustu mánaðamót og jókst því álag á eftirstandandi starfsmenn til muna á seinustu vikum. Þjónn sem hætti um síðustu helgi segir að honum hafi þótt nóg komið þegar einungis fjórir starfsmenn, auk Þóris, voru látnir sjá um annasaman bröns á laugardag. „Við sögðum honum þá að við gætum þetta ekki lengur og ætluðum ekki að vinna um kvöldið, svo við fórum bara,“ segir fyrrverandi starfsmaðurinn. Erfitt sé að horfa upp á þessa þróun þar sem starfsandinn hafi lengi verið góður á veitingahúsinu. Það hafi svo skyndilega breyst við stjórnendaskiptin. Samkvæmt heimildum Vísis stóðu alls þrír starfsmenn vaktina á laugardagskvöld eftir að þjónarnir höfðu yfirgefið svæðið. Þeirra á meðal var áðurnefndur Þórir og nýr starfsmaður sem hafði byrjað sama dag. Undirmönnunin fór ekki framhjá gestum veitingahússins og gripu tveir vinir Þóris sem voru mættir í mat til þess ráðs að létta undir með starfsfólkinu.
Veitingastaðir Reykjavík Mannauðsmál Vinnumarkaður Tengdar fréttir Smit sendir ellefu af Snaps í sóttkví Einn starfsmaður hins vinsæla veitingastaðar Snaps við Óðinstorg í miðbæ Reykjavíkur hefur greinst með Covid-19. Fyrir vikið er hann kominn í einangrun og tíu starfsmenn til viðbótar í sóttkví. 28. ágúst 2020 16:39 Snaps opnar nýjan stað Stefnt er að því að opna vínbar við Óðinstorg með vorinu. Það staðfestir fjárfestirinn Birgir Þór Bieltvedt í samtali við Vísi. Vín og léttir réttir verða á boðstólnum en staðurinn verður rekinn samhliða Snaps. 14. janúar 2020 07:30 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Viðskipti innlent Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Viðskipti innlent Fjármálastjóri Play segir upp Viðskipti innlent Innsigla B5 að kröfu Skattsins Viðskipti innlent Endurgjöf: Það sem þú átt ekki að gera Atvinnulíf Eitruð vinnustaðamenning algeng og margfaldar líkur á kulnun Atvinnulíf Mikill samdráttur á hagnaði Tesla Viðskipti erlent Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja Viðskipti erlent Sækjast eftir fangelsisdómi yfir rafmyntakóngi Viðskipti erlent Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Innsigla B5 að kröfu Skattsins Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Minnsta verðbólga í rúm tvö ár Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Oculis komið á markað Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Grænna skáta Fækkuðu tímum í skriffinnsku um tugi klukkustunda á mánuði Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Sjá meira
Smit sendir ellefu af Snaps í sóttkví Einn starfsmaður hins vinsæla veitingastaðar Snaps við Óðinstorg í miðbæ Reykjavíkur hefur greinst með Covid-19. Fyrir vikið er hann kominn í einangrun og tíu starfsmenn til viðbótar í sóttkví. 28. ágúst 2020 16:39
Snaps opnar nýjan stað Stefnt er að því að opna vínbar við Óðinstorg með vorinu. Það staðfestir fjárfestirinn Birgir Þór Bieltvedt í samtali við Vísi. Vín og léttir réttir verða á boðstólnum en staðurinn verður rekinn samhliða Snaps. 14. janúar 2020 07:30