Allir vilja komast á Alþingi Jakob Bjarnar skrifar 22. febrúar 2021 14:05 Fyrir liggur að það verður blóðugur slagur á Suðurlandi, um efsta sæti á lista Vinstri grænna fyrir komandi Alþingiskosningar. Þingsæti eru takmörkuð auðlind. Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir ómögulegt að spá fyrir um hvernig fer í slag um efsta sæti á lista Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs á Suðurlandi.
Fyrir liggur að fjögur bítast nú um efsta sæti á lista þar. Kolbeinn Óttarsson Proppé alþingismaður, Hólmfríður Árnadóttir skólastjóri í Sandgerði, Róbert Marshall upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar og nú síðast gaf sig fram Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, bóndi og varaþingmaður. Hún hefur lýst því yfir að hún vilji leiða listann. Heiða Guðný nýtur mikilla vinsælda ekki síst fyrir skeleggan málflutning í umhverfisvernd. Hún var í 2. sæti á lista, á eftir Ara Trausta Guðmundssyni sem nokkuð óvænt komst inn á þing í síðustu kosningum. Ekki er úr vegi að ætla að Ari Trausti geti að verulegu leyti þakkað Heiðu Guðný það að hann rataði inná þing. En hugsanlega nýtur hún meira fylgis í grasrót flokksins en meðal forystunnar? Kolbeinn er í innsta hring Katrínar Jakobsdóttur formanns sem nýverið réði Róbert sem upplýsingafulltrúa ríkisstjórnarinnar. Erfitt er að lesa í hvað þetta þýðir. Engin leið að spá fyrir um hvernig fer „Þarna eru fjögur að bítast um toppsætið, VG er með einn þingmann í kjördæminu og mælingar sýna að það er ekki að fara að breytast,“ segir Eiríkur spurður um hvað megi eiginlega um þetta segja. Ólíklegt er að flokkurinn fái fleiri þingmenn en einn í þessu kjördæmi, sé miðað við kannanir og niðurstöðu úr síðustu kosningum. Eiríkur Bergmann segir vonlaust að spá fyrir um hvernig fari í baráttunni um efsta sæti á lista Vinstri grænna á Suðurlandi.vísir/arnar „Þetta er orðið ansi mikið kraðak þarna. Vissulega rétt að ólíklegt er að fáist fleiri en eitt sæti úr kjördæminu. Kolbeinn hlýtur að vera í vænlegastri stöðu en hann fær svakalega samkeppni. Róbert er enginn aukvisi,“ segir Eiríkur. En Róbert, sem á ættir að rekja til Eyja, er þekktur fyrir að draga ekki af sér í kosningabaráttu og gengur þá jafnvel milli bæja og bankar uppá. „En konurnar tvær eru eflaust í bestu tengingunni við kjördæmið á vettvangi þess. Ekki hægt að spá fyrir um hvernig þetta fer. En þetta verður blóðug barátta. Allt eða ekkert. Annað sætið og þú ert úti.“ Þingsæti takmörkuð auðlind Samfylkingin hefur gengið frá sínum listum í Reykjavíkurkjördæmunum og kom þá berlega fram að miklu fleiri en fengu vildu sæti á lista. Er þessi blóðugi slagur Vinstri grænna á Suðurlandi ekki gott dæmi um það hversu áfjáðir menn eru í að komast á þing? „Menn hafa alltaf verið áfjáðir í að komast á þing. Þingsæti eru takmörkuð auðlind.“ Eins og fram hefur komið fram hafa laun þingmanna rokið upp, heldurðu að það hafi áhrif? „Einhver. En ekki mikil. Þetta snýst ekki svo mikið um launin. Á þingmennska ekki vera til komin af hugsjón?“ Er það ekki rétt munað að það var ekkert endilega reiknað með því að VG fengi þingmann af Suðurlandinu síðast? „Jú, rétt er það. Flokkurinn vann mikinn sigur sem skilaði þessu sæti. Er engan veginn öruggt að það náist í haust.“ Enn eru margir mánuðir í kosningar. Þær verða að öllu óbreyttu haldna 25. september en fyrir liggur að fjölmargir eru þegar komnir í kosningaham.
Vinstri græn Alþingiskosningar 2021 Suðurkjördæmi Tengdar fréttir Róbert sækist eftir fyrsta sæti á lista Vinstri grænna Róbert Marshall, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, ætlar að sækjast eftir oddvitasæti í forvali Vinstri grænna í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar sem fram fara í september. 7. febrúar 2021 22:40 Kolbeinn vill leiða lista Vinstri grænna í Suðurkjördæmi Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna, hefur tilkynnt að hann gefi kost á sér til að leiða lista Vinstri grænna í Suðurkjördæmi í forvali flokksins sem sé framundan. 20. janúar 2021 07:47 Hólmfríður sækist eftir þingsæti Ara Trausta Hólmfríður Árnadóttir, skólastjóri í Sandgerðisskóla, ætlar að gefa kost á sér til að leiða lista Vinstri grænna í Suðurkjördæmi í komandi Alþingiskosningum. Þannig hyggst Hólmfríður sækjast eftir sæti Ara Trausta Guðmundssonar, 5. þingmanns Suðurkjördæmis, sem hefur gefið það út að hann hyggist ekki sækjast eftir að gegna áframhaldandi þingmennsku á næsta kjörtímabili. 28. nóvember 2020 14:16 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Fer frá RÚV til Vinstri grænna Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Sjá meira
Róbert sækist eftir fyrsta sæti á lista Vinstri grænna Róbert Marshall, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, ætlar að sækjast eftir oddvitasæti í forvali Vinstri grænna í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar sem fram fara í september. 7. febrúar 2021 22:40
Kolbeinn vill leiða lista Vinstri grænna í Suðurkjördæmi Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna, hefur tilkynnt að hann gefi kost á sér til að leiða lista Vinstri grænna í Suðurkjördæmi í forvali flokksins sem sé framundan. 20. janúar 2021 07:47
Hólmfríður sækist eftir þingsæti Ara Trausta Hólmfríður Árnadóttir, skólastjóri í Sandgerðisskóla, ætlar að gefa kost á sér til að leiða lista Vinstri grænna í Suðurkjördæmi í komandi Alþingiskosningum. Þannig hyggst Hólmfríður sækjast eftir sæti Ara Trausta Guðmundssonar, 5. þingmanns Suðurkjördæmis, sem hefur gefið það út að hann hyggist ekki sækjast eftir að gegna áframhaldandi þingmennsku á næsta kjörtímabili. 28. nóvember 2020 14:16