Bæjarar skoruðu fjögur

Eric Maxim Choupo-Moting skoraði eitt og lagði upp annað.
Eric Maxim Choupo-Moting skoraði eitt og lagði upp annað. AFP/Thomas Kienzle

Þýskalandsmeistarar Bayern München eru komnir í átta liða úrslit þýsku bikarkeppninnar í fótbolta eftir öruggan 4:0-útisigur á Mainz í kvöld.

Kamerúninn Eric Choupo-Moting var áberandi í fyrri hálfleik, því hann skoraði fyrsta markið á 17. mínútu og lagði upp þriðja markið á Leroy Sané á 44. mínútu. Þess á milli skoraði Jamal Musiala annað mark meistaranna.

Var staðan í hálfleik því 3:0. Alphonso Davies sá um að gera fjórða mark Bayern á 83. mínútu og þar við sat. Vont kvöld varð enn verra fyrir Meinz á 86. mínútu þegar Alexander Hack fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert