Minnast þeirra sem létust í krapaflóðum á Patreksfirði fyrir fjörutíu árum Atli Ísleifsson skrifar 21. janúar 2023 09:31 Minningarstundin hefst í Patreksfjarðarkirkju klukkan 14 á morgun, sunnudag. Vísir/Vilhelm Fjörutíu ár verða á morgun liðin frá því að tvö krapaflóð féllu á Patreksfjörð með þeim afleiðingum að fjögur létust og nítján hús skemmdust. Að því tilefni verður blásið til minningarathafnar um hin látnu. Í tilkynningu frá sveitarfélaginu Vesturbyggð kemur fram að minningarstund verði í Patreksfjarðarkirkju klukkan 14 á morgun að Kristjáni Björnssyni vígslubiskupi viðstöddum. „Þar munu listamenn af svæðinu flytja tónlistaratriði. Að því loknu verður gengið að minnisvarða þeirra sem létust í krapaflóðunum, þar verða viðbragðsaðilar á svæðinu í broddi fylkingar. Því næst verður minningarathöfn í félagsheimilinu þar sem Guðni Th. Jóhannesson forseti, Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, og Úlfar Thoroddsen fyrrverandi sveitarstjóri Patreksfjarðarhrepps taka til máls,“ segir í tilkynningunni. Guðni Th. Jóhannesson forseti mun sækja minningarathöfnina.Vísir/Vilhelm Voru á leið á þorrablót Um hamfarirnar segir að það 22. janúar árið 1983 hafi Patreksfirðingar verið að gera sig prúðbúna fyrir þorrablót þegar krapaflóðin féllu með stuttu millibili á bæinn. „Mikil eyðilegging átti sér stað og mörg misstu aleigu sína. Valgerður Jónsdóttir 77 ára, Marteinn Ólafur Pétursson 41 árs, Sigurbjörg Sigurðardóttir 58 ára og Sigrún Guðbrandsdóttir 6 ára létust öll í flóðinu en auk þeirra slösuðust tíu manns. Viðbragðsaðilar frá Patreksfirði, nærliggjandi byggðalögum og Reykjavík lyftu grettistaki við að bjarga fólki úr krapanum. Bæjarbúum var smalað í félagsheimilið á meðan björgunarstarfi stóð, enda nóg af þorramat til að metta fjöldann. Öll sem vettlingi gátu valdið lögðu hönd á plóg en atburðurinn umturnaði lífi margra Patreksfirðinga, enda um náið samfélag að ræða og enga áfallahjálp að fá á þessum tíma,“ segir um atburðina.
Í tilkynningu frá sveitarfélaginu Vesturbyggð kemur fram að minningarstund verði í Patreksfjarðarkirkju klukkan 14 á morgun að Kristjáni Björnssyni vígslubiskupi viðstöddum. „Þar munu listamenn af svæðinu flytja tónlistaratriði. Að því loknu verður gengið að minnisvarða þeirra sem létust í krapaflóðunum, þar verða viðbragðsaðilar á svæðinu í broddi fylkingar. Því næst verður minningarathöfn í félagsheimilinu þar sem Guðni Th. Jóhannesson forseti, Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, og Úlfar Thoroddsen fyrrverandi sveitarstjóri Patreksfjarðarhrepps taka til máls,“ segir í tilkynningunni. Guðni Th. Jóhannesson forseti mun sækja minningarathöfnina.Vísir/Vilhelm Voru á leið á þorrablót Um hamfarirnar segir að það 22. janúar árið 1983 hafi Patreksfirðingar verið að gera sig prúðbúna fyrir þorrablót þegar krapaflóðin féllu með stuttu millibili á bæinn. „Mikil eyðilegging átti sér stað og mörg misstu aleigu sína. Valgerður Jónsdóttir 77 ára, Marteinn Ólafur Pétursson 41 árs, Sigurbjörg Sigurðardóttir 58 ára og Sigrún Guðbrandsdóttir 6 ára létust öll í flóðinu en auk þeirra slösuðust tíu manns. Viðbragðsaðilar frá Patreksfirði, nærliggjandi byggðalögum og Reykjavík lyftu grettistaki við að bjarga fólki úr krapanum. Bæjarbúum var smalað í félagsheimilið á meðan björgunarstarfi stóð, enda nóg af þorramat til að metta fjöldann. Öll sem vettlingi gátu valdið lögðu hönd á plóg en atburðurinn umturnaði lífi margra Patreksfirðinga, enda um náið samfélag að ræða og enga áfallahjálp að fá á þessum tíma,“ segir um atburðina. Dagskrá 14:00 – Minningarstund í Patreksfjarðarkirkju. Séra Kristján Arason heldur minningarstund að viðstöddum Kristjáni Björnssyni vígslubiskupi. Tónlistarfólk af svæðinu flytur tónlistaratriði. 14:40 – Gengið að minnisvarðanum. Viðbragðsaðilar verða í broddi fylkingar og lagður verður blómasveigur og kerti við minnisvarðann. 15:15 – Minningarathöfn í félagsheimili Patreksfjarðar. Til máls taka: Úlfar Thoroddsen, fyrrverandi sveitarstjóri Patreksfjarðarhrepps. Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. Að lokinni dagskrá býður slysavarnardeildin Unnur upp á kaffi og veitingar.
Dagskrá 14:00 – Minningarstund í Patreksfjarðarkirkju. Séra Kristján Arason heldur minningarstund að viðstöddum Kristjáni Björnssyni vígslubiskupi. Tónlistarfólk af svæðinu flytur tónlistaratriði. 14:40 – Gengið að minnisvarðanum. Viðbragðsaðilar verða í broddi fylkingar og lagður verður blómasveigur og kerti við minnisvarðann. 15:15 – Minningarathöfn í félagsheimili Patreksfjarðar. Til máls taka: Úlfar Thoroddsen, fyrrverandi sveitarstjóri Patreksfjarðarhrepps. Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. Að lokinni dagskrá býður slysavarnardeildin Unnur upp á kaffi og veitingar.
Vesturbyggð Náttúruhamfarir Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Innlent Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Innlent „Hann hættir bara ekki” Innlent Grunaðir um rán í miðbænum Innlent Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Erlent Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Erlent Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Innlent Nöfn þeirra sem létust í Eyjafirði Innlent Fleiri fréttir Grunaðir um rán í miðbænum Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Kappræðurnar höfðu talsverð áhrif á kjósendur Forréttindi að fá að fylgja fólki í gegnum erfiðasta tíma lífsins Vilja breyta fyrirkomulagi við úthlutun plássa „Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“ Handtaka hælisleitenda og brottrekstur Hollands úr Eurovision Hitaveitulögn sprakk í Breiðholti Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Rigning í kortunum í kvöld „Hann hættir bara ekki” Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Gætu verið einhverjar vikur í næsta gos Forsetakosningar á Eyrarbakka – munu sakna buffsins frá Guðna Var beðinn um upplýsingar um unga leikmenn vegna veðmáls Um fimm prósent fjölskyldusameininga vegna flóttamanna og hælisleitenda Senda á tólf ára palestínskan dreng með hrörnunarsjúkdóm úr landi Hræðsla við brottvísun, fylgi á fleygiferð og veðjað á leiki barna Ísland greiddi atkvæði með auknum rétti Palestínu hjá SÞ Auknar líkur á nýju eldgosi á næstu dögum Reyndi að drepa mann eftir að upp úr sauð á gamlárskvöld Kári tekur ábyrgð á stuðningi Víðis og Þórólfs Stefnir í tveggja turna tal Guðmundur í Afstöðu hundskammar DV Stórri flotaæfingu NATO lauk í Reykjavík „Þegar hann loksins náði að bjóða mér út missti ég hnén“ Rafmagnslaust í Vesturbænum Sjá meira