Búin að prjóna sjötíu lopapeysur á Flúðum í Covid Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 6. mars 2021 19:33 Hann Lára Bjarnadóttir á Flúðum við hluta af lopapeysunum, sem hún hefur prjónað í Covid, eða um 70 peysur frá því að Covid kom fyrst upp á Íslandi. Peysurnar selur hún heima hjá sér þeim, sem vilja kaupa. Magnús Hlynur Hreiðarsson Hanna Lára Bjarnadóttir á Flúðum hefur ekki látið sér leiðast í Covid því hún hefur prjónað sjötíu lopapeysur. Þá vekja púðarnir hennar sérstaka athygli en þá saumaði hún í rútu yfir Kjöl þegar hún var ráðskona.
Hanna Lára býr fallegri íbúð á Flúðum þar sem hún lætur fara vel um sig en lengst af bjó hún sem bóndi í Haukholtum í Hrunamannahreppi með manni sínum, Lofti Þorsteinssyni en hann lést í september 2019. Eftir að kórónuveiran greindist á Íslandi fyrir um ári síðan lokaði Hanna Lára sig inni enda í áhættuhópi með sykursýki og krabbamein og fór að prjóna lopapeysur og eru þær nú orðnar um sjötíu talsins. Hún hefur líka prjónað mikið af barnapeysum, sokkum og húfum á þessu tímabili. „Já, ég leitaði í prjónana. Það er rosalega gott að hafa prjónana, fljótur að líða tíminn. Ég er talin vera rosalega snögg að prjóna, ég veit ekkert hvað það er, en ég er rosalega fljót að prjóna,“ segir Hanna Lára. Lopapeysurnar hjá Hönnu Láru eru mjög fallegar með allskonar munstri og í fjölbreyttum litum. Uppskriftirnar fær hún flestar um gömlum prjónablöðum og allt garnið kaupir hún í Hannyrðabúðinni á Selfossi því hún segist ekki nenna að fara til Reykjavíkur eftir garni. „Ég sit alltaf við, t.d. yfir sjónvarpinu á kvöldin, þá er ég alltaf með prjónana mína og líka oft á morgnanna. Svo fer ég kannski eitthvað út, kannski upp í fjárhús eða eitthvað um miðjan daginn. Annars er ég alltaf inni með prjónana og svona eitthvað að dunda mér.“ Hanna Lára segist vera dugleg að selja lopapeysurnar sínar og hún prjóni mikið eftir pöntunum. „Mér finnst voðalega gaman að prjóna og leika mér með liti,“ segir Hana Lára. Nokkrir fallegir púðar eru í stofunni hjá Hönnu Láru, sem hún saumaði en það gerði hún þegar hún var ráðskona hjá Guðmundi Jónassyni sumarið 2007 og ferðaðist í vinnuna í rútu yfir kjöl, þá var tíminn nýttur í púðasaum. Hanna Lára er aldrei aðgerðalaus. „Nei, helst ekki, ég get það ekki, ég á voðalega erfitt að vera og gera ekki neitt,“ segir hún og hlær. Hanna Lára er mjög snögg að prjóna en hún situr alltaf í þessum sófa fyrir framan sjónvarpið þegar hún mundar prjónana.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Hrunamannahreppur Landbúnaður Prjónaskapur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs Innlent Halla þótti standa sig best Innlent Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Erlent Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Vann fimmtíu milljónir króna Innlent „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Innlent Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Innlent Fleiri fréttir Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýndin af þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Munu lappa upp á vatnspóstinn í Aðalstræti 300 kröfur um húsleit og 294 um símahlustun síðustu fimm ár Tvö innbrot á heimili og líkamsárás með kylfu og piparúða Vann fimmtíu milljónir króna „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal 1.715 börn fengið leikskólapláss Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Sjá meira