Sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi en heldur ökuréttindum fyrir mistök Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. desember 2020 16:31 Síðan slysið varð hefur Reykjanesbraut verið tvöfölduð. Vísir/Egill Landsréttur staðfesti í dag dóm yfir karlmanni fyrir manndráp af gáleysi í október 2018. Var hann sakfelldur fyrir að hafa ekið bíl sínum yfir á rangan vegarhelming á Reykjanesbraut í Hafnarfirði með þeim afleiðingum að árekstur varð við bíl sem kom úr gagnstæðri átt.
Farþegi í bíl mannsins lést í árekstrinum. Hann þarf að greiða ökumanni hins bílsins 600 þúsund krónur í miskabætur. Lögreglu barst tilkynning á sjötta tímanum að morgni 28. október. Árekstur jepplings og fólksbíls varð á Reykjanesbraut til móts við verslun Bónus í Vallahverfinu. Fram kom í fréttum á þeim tíma að hinn látni hefði verið erlendur ferðamaður. Ákærði sagðist við lögreglu á vettvangi hafa sofnað við aksturinn og ekki vaknað fyrr en áreksturinn varð. Hann vildi ekki staðfesta þá frásögn sína fyrir dómi. Þar kom fram að sannað þótti, með ljósmyndum og skýrslu tæknideildar, að hann hefði ekið bíl sínum yfir á rangan vegarhelming. Hélt ökuréttindum Var hann sakfelldur fyrir að hafa ekið bílnum án nægilegrar varúðar og þannig á sig kominn að vera ekki fær um að stjórna ökutækinu örugglega með þeim afleiðingum að ökutækið fór á rangan vegarhelming. Þar lenti það í árekstri með þeim afleiðingum að einn lést. Héraðsdómur Reykjaness dæmdi ökumanninn í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og svipti ökuréttindum í hálft ár. Landsréttur staðfesti refsinguna en þar sem ríkissaksóknari vék hvergi að kröfu um sviptingu ökuréttar fyrir Landsrétti eða rökstuðningi fyrir þeirri kröfu þótti dómnum ekki ástæða til að svipta hann ökurétti. Reykjanesbrautin var á þessum tíma með eina akrein í hvora átt en síðan hefur Reykjanesbraut verið tvöfölduð.
Dómsmál Samgönguslys Hafnarfjörður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Erlent Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Innlent Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Erlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Fleiri fréttir Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Halla vill að hér verði tekin upp samfélagsþjónusta Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Sjá meira