Efast um að „LBG teymið“ eigi upp á pallborðið hjá hinsegin samfélaginu Sylvía Hall skrifar 21. september 2020 23:01 Þorbjörg Þorvaldsdóttir, formaður Samtakanna '78. Vísir
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, formaður Samtakanna´’78, segir stórefast um að nýr umræðuvettvangur sam- og tvíkynhneigðs fólks, sem gefur sig út fyrir að vilja „breyta áherslum“ í umræðu um kynhneigð sína og standa vörð um tjáningarfrelsið, eigi upp á pallborðið hér á landi. Samtökin nefnast LBG teymið, en þau hafa verið sökuð um transfóbíu á samfélagsmiðlum. LBG teyminu er ætlað að vera umræðuvettvangur fyrir sam- og tvíkynhneigt fólk. Iva Marín Adrichem er ein þeirra sem kemur að stofnun vettvangsins og lýsti hún honum sem „frjálslyndum, opnum og lýðræðislegum umræðuvettvangi“ í grein sem birtist á vef Mannlífs í dag. Íva Marín Adrichem er ein þeirra sem kemur að stofnun LBG teymisins. „Mín skoðun er að fólkið sem talar hæst um fjölbreytileika kunni ekki að meta fjölbreytileika nema þegar kemur að utanaðkomandi eða meðfæddum eiginleikum á borð við kyn, kynhneigð, aldur, fötlun, húðlit o.s.frv. Fjölbreytileika í hugsunarhætti, pólitískri afstöðu og lífsstíl er virkilega ábótavant og mér finnst því miður viljinn til að fagna honum ekki vera fyrir hendi innan „hinsegin samfélagsins“,“ segir Iva Marín. Fjölbreytileikanum hafi verið fórnað í þágu „skoðanakúgunar“ af hálfu háværs minnihluta að hennar mati. Hinsegin samfélagið samheldnara hér á landi Samtökin hafa tengingu við LBG Alliance, sem er hópur hinsegin fólks sem var stofnaður vegna óánægju með jákvætt viðhorf í garð trans fólks innan Stonewall-samtakanna. Einn stofnenda hópsins lýsti eftir meðlimum í LBG teymið á Facebook-hópnum „Hommaspjallið“ og fylgdi auglýsing frá LBG Alliance með. Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, formaður Trans Ísland, ræddi samtökin í samtali við Stundina í dag. Hún sagði hópinn stofnaðan til þess að beita sér gegn réttindum trans fólks og tilraun til þess að flytja inn transfóbíska orðræðu til Íslands. Hún, líkt og Þorbjörg, telur ekki líklegt að hópurinn nái fótfestu innan hinsegin samfélagsins hér á landi. „Hinsegin samfélagið á Íslandi er miklu samheldnara en í Bretlandi þar sem umræður eru mjög fjandsamlegar og erfiðar gagnvart transfólki. Ég held að fólk kæri sig ekki um að það sé verið að flytja inn svona bull, það sér í gegnum þetta.“ Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir. Í samtali við Vísi tekur Þorbjörg í sama streng og sér ekki fram á að hópurinn verði að stórri hreyfingu hér á landi. Eftir því sem hún kemst næst eru aðeins fjórar manneskjur í þessu teymi. Hún hefur þó áhyggjur af því að þetta gæti haft neikvæðar afleiðingar í för með sér. „Auðvitað get ég ekki talað fyrir trans fólk og þeirra reynslu, en umræðan í samfélaginu hefur verið hatrömm undanfarið,“ segir Þorbjörg. Hún segir það sorglega þróun sem hafi verið áberandi erlendis en hafi sem betur fer ekki verið eins áberandi hér á landi. „Við þurfum að vera vakandi fyrir svona umræðu því á endanum hefur hún áhrif. Ég held að fólk megi alveg hugsa sig um áður en það tjáir svona skoðanir, því það eru manneskjur þarna á bak við.“ Uggur í hinsegin samfélaginu Miklar umræður hafa skapast á samfélagsmiðlum í dag vegna LBG teymisins. Hinsegin fólk hefur lýst yfir áhyggjum af því að boðskapur samtakanna verði til þess að hatursorðræða í garð trans fólks fari að aukast og grafi undan réttindabaráttu þeirra. Þá hafa margir gagnrýnt samtökin, bæði fólk innan hinsegin samfélagsins og stuðningsmenn þess, og sagt það fjarri lagi að samtökin snúist um tjáningarfrelsi. Vá hvað það er gífurlega mikil mannvonska að stofna anti-trans hreyfingu. Þetta yfirklór að LGB Teymið snúist um tjáningafrelsi er svo næfurþunnt að hvert einasta mannsbarn sér í gegnum það sem er ekki transphobe.— Milljón (@SteiniFrid) September 21, 2020 Þá hafa margir kallað eftir samstöðu með trans fólki. Með því að stofna slíkan umræðuvettvang sem útiloki ákveðinn hluta hinsegin samfélagsins sé verið að vega að réttindabaráttu þeirra. „Við höfum ekki efni á að leyfa þessum hugsunarhætti að ná rótfestu.“ Þetta vegur mjög þungt að mér s.l. daga og ég hvet alla til að sýna samhug og stuðning í verki. Við höfum ekki efni á að leyfa þessum hugsunarhætti að ná rótfestu.— Bríet í Macland (@thvengur) September 20, 2020 ég er algjörlega búið á því, get ekki meira af kjaftæði - hlúið að fólkinu í kringum ykkursendi aftur extra mikla ást á öll trans systkini mín í dag og takk þið sem standið við bakið á okkur— Vally ⚧ (@kynsegin) September 21, 2020 Ég skil svo vel að trans samfélagið sé orðið langþreytt á því að þurfa að vera endalaust í vörn, og nú frá árásum innan hinsegin samfélagsins. Það er löngu kominn tími til að við cis-fólk styðjum trans systkini okkar rétt eins og þau hafa stutt okkur. 1/2 https://t.co/bjCEb36jMi— Númi #RefugeesWelcome (@numisveins) September 21, 2020 Við þurfum að segja hátt og skýrt: það er EKKERT jafnrétti án transfólks. LBG samtök eiga EKKERT erindi í umræðuna. Ef eitthvað er þá ættu réttindi transfólks að fá fimmfalt MEIRI athygli og áherslu. Sameinuð stöndum við, sundruð föllum við. Og við stöndum með ykkur✊🏼❤️ 2/2— Númi #RefugeesWelcome (@numisveins) September 21, 2020
Hinsegin Samfélagsmiðlar Tjáningarfrelsi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Sjá meira