Katrín hefur ferðast til rúmlega 220 landa og ætlar að klára rest Stefán Árni Pálsson skrifar 22. október 2020 13:31 Katrín Sif Einarsdóttir ætlar sér til allra landa í heiminum.
Katrín Sif Einarsdóttir er væntanlega víðförlasti Íslendingurinn og hefur hún ferðast til 220 landa. Hún ætlar sér að klára þau 25 sem eftir eru. Katrín ræddi við þá Heimi Karlsson og Gulla Helga í Bítinu á Bylgjunni í morgun. „Núna er ég á Íslandi og er í sóttkví,“ segir Katrín og hlær. „Ég var að koma frá Eistlandi og var þar með kokkaliði sem var að keppa í kokkakeppni. Ég fékk að koma með sem svona stuðningsmaður númer eitt.“ Samkvæmt formlegum skráningum eru bara til 195 lönd í heiminum en það er skilgreiningaratriði og eru þau í raun fleiri. „Ég stefni á að fara til um 25 landa til viðbótar. Ég er dugleg að ferðast bara með bakpoka og tjalda jafnvel sum staðar. Ég er ekki að eyða miklum peningi í gistingu og oft ferðast ég á milli landa með rútu eða fer bara á puttanum.“ Hún segir að það sé alltaf ódýrara að vera erlendis en á Íslandi. Þúsund krónur á dag „Matskostnaðurinn og smáhlutir, þetta fer svo hratt upp heima en úti get ég alveg lifað á þúsund krónum á dag fyrir þrjár máltíðir.“ Hún segist alveg hafa lent í einhverri hættu á þessum mikla ferðalagi um heiminn. „Það getur verið hættulegt að vera alls staðar og það hefur aldrei stoppað mig. Það sem stoppar mig er bara einfaldlega að komast á staðinn. Ég hef t.d. komið til Norður-Kóreu og það er ekki erfitt að komast þangað. Það var samt pínu ógnvekjandi til að byrja með að vera þar en svo þegar maður var búin að átta sig var þetta ekkert mál og ég var líklega öruggasta konan í landinu, því það eru allir að fylgjast með þér og horfa á þig og því getur ekkert gerst fyrir þig,“ segir Katrín sem hefur farið til hættulegustu landa heims. „Það er alltaf hægt að finna staði í þessum löndum sem eru ekkert hættulegir og ég hef mikið til verið upp í sveit t.d. í Afganistan,“ segir Katrín sem hefur meðal annars komið til Sádí-Arabíu, Súdan, Nígeríu, Sómalíu og fleiri landa. Hennar uppáhalds land er einfaldlega Ísland en hún er einnig mjög hrifin af Argentínu. Hér að neðan má hlusta á viðtalið við Katrínu.
Ferðalög Bítið Íslendingar erlendis Mest lesið Gallstasi á meðgöngu: „Ég grátbað um að ég yrði sett af stað“ Áskorun Hugsar oft til fyrstu ástarinnar vegna ástandsins í Íran Lífið Krakkatían: Celebs, sumar og forseti Íslands Lífið „Það er einmanalegt að missa móður“ Lífið Sveitarstjóri og sauðfjárbóndi fóru á kostum Lífið Hvetur fólk til að nota sólarvörn eftir krabbameinsgreiningu Lífið Ætlar hvorki að hætta að vinna né opna kaffihús Lífið Strangheiðarleg dreifbýlistútta og lopapeysan í uppáhaldi Tíska og hönnun Mynd ársins af palestínskum flóttamanni Lífið Milljónir hafa horft á stikluna fyrir Snertingu Lífið Fleiri fréttir Hugsar oft til fyrstu ástarinnar vegna ástandsins í Íran Krakkatían: Celebs, sumar og forseti Íslands Sveitarstjóri og sauðfjárbóndi fóru á kostum Hvetur fólk til að nota sólarvörn eftir krabbameinsgreiningu Metmæting á tískusýningu útskriftarnema LHÍ Mynd ársins af palestínskum flóttamanni Ætlar hvorki að hætta að vinna né opna kaffihús Milljónir hafa horft á stikluna fyrir Snertingu Karl konungur snýr aftur úr veikindaleyfi Fréttatía vikunnar: Þyrlur, forsetaframbjóðendur og skemmdarverk „Það er einmanalegt að missa móður“ Trúlofuðust á gjörgæslunni eftir bílslys á Íslandi Ellý snýr aftur vegna fjölda áskorana Ætlað að auka umræðu og sýnileika leiðsöguhunda Nýtt upphaf Margrétar: „Búin að heita þessu nafni í rúma viku“ Borgarstjóri og frú tóku veislustjórnina að sér Fágæt og falleg eign við Flókagötu Aron passaði varla inn í bílinn Nefnd í höfuðið á tveimur mikilvægum konum í lífi þeirra Grínari selur íbúð í Vesturbænum Sophia Bush kemur út úr skápnum „Hann var langt á undan sinni samtíð“ Will Smith hrifinn af akureyrsku hjartaljósunum Ebba Katrín valin bæjarlistamaður Hafnarfjarðar Logi Geirs og Inga Tinna eiga von á barni Varð móðir sextán ára Heyrt kjaftasögurnar um eldri mennina sem stýri henni Japaninn sló heimsmet í Hlíðarfjalli Lekker hæð listakonu til sölu „Stundum finnst mér ég getað sigrað heiminn“ Sjá meira