Lokakeppni Gulleggsins fer fram þann 10. febrúar í Grósku. Rýnihópur sem telur yfir 70 reyndra einstaklinga úr atvinnulífinu og nýsköpunarsenunni fóru yfir 101 hugmynd frá upprennandi frumkvöðlum og er nú búinn að velja þau tíu teymi sem keppast um Gulleggið 2023.

Gulleggið er stærsta og elsta frumkvöðlakeppni Íslands. Meðal fyrirtækja sem stigu sín fyrstu skref í keppninni eru Controlant, Meniga og SolidClouds.

Vinnustofur fyrir teymin tíu munu hefjast um helgina og fara þau í gegnum stífa þjálfun áður en þau stíga á stóra sviðið í Grósku þann 10. febrúar. Lögð verður áhersla á hvernig þau fara að því að hefja rekstur og hvaða þættir það eru sem þarf að horfa til þegar koma á hugmynd í framkvæmd á árangursríkan hátt.

Teymin í topp 10:

Aurora Interactive

Dion Duff, Friðrik Snær Tómasson, Halldór Stefánsson

„Framleiðsla á þriðju persónu action adventure tölvuleik.”

Bambaló barnapössun

Aníta Ísey, Rebekka Levin

„Bambaló Barnapössun (snjallforrit). Fyrir íslenskar fjölskyldur sem vantar barnapössun fyrir eina kvöldstund af og til án þess að fá samviskubit.”

Better sex

Sigga Dögg, Sævar Eyjólfsson

„Rafræn fullorðins kynfræðsla á ensku í streymisveitu”

Ezze

Þóra Ólafsdóttir, Donna Cruz

„App til að kaupa, selja, gefa eða vera með uppboð á eigin eignum í. Jafn notendavænt og reikniritað eins og að nota t.d. Instagram.”

PellisCol

Íris Björk Marteinsdóttir, Ívar Örn Helgason

„PellisCol ætlar að vera fyrst á Íslandi til þess að þróa Spa húðvörur með íslensku kollageni, kollageni sem er unnið úr þorskroði.”

Sápulestin

Alda Leifsdóttir, Elísabet Halldórsdóttir

„Breytum sorpi í gull. Endurvinnum notaða steikingarolíu í vistvæna lúxussápu. Sápulestin fer hringin í kringum landið, sækir notaða olíu á veitingastaði og sérhannar sápur fyrir sveitir og landshluta.”

Snux

Harpa Hjartardóttir

„Sílíkonpúði ætlaður sem stuðningur við að hætta að taka nikótínpoka í vörina. Nikótínpúðar eyða tannholdi og eru mjög ávanabindandi.”

SoFo Software

Fjölnir Þrastarson, Þórarinn Sigurvin Gunnarsson, Friðrik Örn Gunnarsson

„SoFo er samfélagsmiðill fyrir fjárfesta. Með SoFo getur fólk deilt meðmælum, fylgt eignum og fólki, og risið á toppinn.”

Soultech

Davíð Haraldsson, Stefán Ólafsson, Pétur Örn Jónsson, Bryndís Jóhannsdóttir, Hrefna Líf Ólafsdóttir

„Smáforrit þar sem allir geta farið í gegnum sálfræðimeðferðir. Hugbúnaður sem aðstoðar sálfræðinga við að veita meðferðir.”

Stitch hero

Þórey Rúnarsdóttir

„Knitting pattern designs, knitting machines, and knitwear production”

„Ég óska teymum til hamingju að hafa komist áfram í um Gulleggið. Þetta er virkilega spennandi að sjá hvað hópurinn er fjölbreytilegur og ólíkar hugmyndir á bakvið hvert teymi. Það er alltaf erfitt að segja nei og í ár var það einstaklega sárt því hugmyndirnar og frumkvöðlarnir voru virkilega flottir og hvetjum við fólk til að halda áfram þrátt fyrir að hafa ekki komist áfram að þessu sinni,“ segir Ása María Þórhallsdóttir, verkefnastjóri Gulleggsins.

Gulleggið frumkvöðlakeppnin er haldin af KLAK - Icelandic Startups og hefur farið fram árlega síðan 2008. Tilgangurinn er að nýjar hugmyndir fái brautargengi og koma reyndir frumkvöðlar, fjárfestar og sérfræðingar að keppninni á hverju ári og veita leiðsögn og gefa endurgjöf.