Hyggilegt að hreinsa niðurföll og ræsi

Hyggilegt er að hreinsa niðurföll og ræsi. Mynd úr safni.
Hyggilegt er að hreinsa niðurföll og ræsi. Mynd úr safni. mbl.is/Júlíus

Spár gera ráð fyrir suðvestlægri átt, 13-18 m/s, sums staðar mun hvassara á Norðurlandi um tíma og í Öræfum. Talsverð rigning verður á vesturhelmingi landsins en úrkomulítið fyrir austan. Hiti verður á bilinu 4 til 9 stig.

Fram kemur á vef Veðurstofunnar að vegna rigningar á vesturhelmingi landsins sé hyggilegt að hreinsa niðurföll og ræsi.

Mun hægara og skúrir eða él vestan til um kvöldið og kólnar.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert