Arðsemin af breyttu kerfi um þjónustu við börn á pari við Kárahnjúkavirkjun og Keflavíkurflugvöll Sunna Sæmundsdóttir og Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifa 30. nóvember 2020 20:11 Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra. Vísir/Vilhelm Víðtækar breytingar verða gerðar á þjónustu við barnafjölskyldur sem þurfa á stuðningi að halda samkvæmt nýju frumvarpi félags- og barnamálaráðherra. Arðseminni er líkt við stóra innviðafjárfestingu á borð við Kárahnjúkavirkjun.
Frumvarp um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna var kynnt og lagt fram á Alþingi í dag. Ráðherra segir málið hafa verið í vinnslu í þrjú ár og að yfir eitt þúsund manns hafi komið að vinnunni. „Við erum að skilgreina hér í fyrsta skipti hvernig kerfið okkar á að tala saman í kringum barnið og setja barnið í miðjuna í öllu sínu starfi,“ segir Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra. Fjölskyldum og öllum börnum undir 18 ára aldri sem þurfa snemmtækan stuðning verður tryggður aðgangur að sérstökum tengilið sem veitir leiðbeiningar og fylgir þjónustunni eftir í kerfinu. Ef börn þurfa stuðning til lengri tíma verður útvegaður málstjóri sem á að tryggja greiningu á þörfum, að barn fái stuðningsáætlun og að þjónusta verði veitt í samræmi við hana. „Það hefur sýnt sig að börn sem þarfnast þjónustu, að oft á tíðum þurfa fjölskyldurnar að sækja sjálf þjónustuna. Þau vita ekki hvaða hurðar þau eiga að banka á, þau vita ekki hvaða þjónustu þau eiga að biðja um. En þarna erum við í rauninni bara að snúa öllu kerfinu við,“ segir Ásmundur. Verði lögin samþykkt taka þau gildi í janúar og talið er að það taki þrjú ár að innleiða breytingarnar. Kostnaður er metinn á 1,3 milljarða á hverju ári en hagfræðingi sem var falið að meta hagræn áhrif líkir þessu við innviðafjárfestingu. „Arðsemin er í rauninni svipuð og af arðbærustu framkvæmdum Íslandssögunnar. Þannig arðsemin af þessum breytingum ætti að vera sambærileg við til dæmis Kárahnjúkavirkjun eða Keflavíkurflugvöll,“ segir Björn Brynjúlfur Björnsson hagfræðingur. Það taki tíma að fylgja eftir fyrstu börnum í nýju kerfi og miðað er við að færri fari út af sporinu eftir breytingar. Sé einungis litið á fjárhagshliðina er miðað við þjóðhagslegur ávinningur við það fari fram úr kostnaði eftir tíu ár. „Þeir þurfa minni heilbrigðisþjónustu, hafa hærri ævitekjur og þurfa minni aðstoð frá félagslegum kerfum,“ segir Björn.
Börn og uppeldi Ofbeldi gegn börnum Alþingi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Félagsmál Réttindi barna Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Innlent Fleiri fréttir Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Sjá meira