Tilkynna töluverðan koparfund í Grænlandi

Eldur Ólafsson, forstjóri Amaroq.
Eldur Ólafsson, forstjóri Amaroq.

Amaroq Minerals ltd., auðlindafélag sem heldur um víðtæk rannsókna- og vinnsluheimildir á Grænlandi, hefur birt niðurstöður rannsókna ársins 2022 á þróunarsvæðinu Kobberminebugt á Suður-Grænlandi.

Fram kemur í tilkynningu að málar hafi fundist í umtalsverðu magni í tengslum við umbreytingaberg á svæðinu. Gefur fundurinn tilefni til að ætla að fjöldi svipaðra svæða sé að finna á um 40 km löngu granítsnertisvæði sem verður kannað betur á þessu ári.

Sýni sem voru tekin við Josva-kopnarnámuna voru með allt að 4,2% koparmagn á 2,5 metra breiðu belti og allt að 11,6% koparmagn á ríflega 50 sentímetra breiðu belti.

Benda til umtalsverðrar koparmyndunar

„Félagið heldur áfram rannsóknum á svæðum sem innihalda efnahagslega mikilvæga málma og sýna þessar rannsóknir enn betur fram á jarðfræðilega möguleika Suður-Grænlands. Þessar niðurstöður benda til umtalsverðrar koparmyndunar í vesturenda steinefnabeltisins sem Amaroq er að kanna,“ segir Eldur Ólafsson, forstjóri Amaroq, í tilkynningunni.

„Hátt málmhlutfall í berginu við Kobberminebugt kemur ekki á óvart í ljósi sögulegrar smánámuvinnslu á svæðinu og teymið okkar vinnur nú náið að því að bera kennsl á fleiri æðar og svæði sem hægt er að vinna. Markmiðið er að finna nægilegt vinnanlegt magn af kopar til að tryggja hagkvæmni framtíðarvinnslu á svæðinu. Við munum halda áfram rannsóknum á þessu ári og ég hlakka til að kynna fleiri jákvæðar niðurstöður um þetta á næstunni,” segir hann.

Amaroq Minerals var stofnað árið 2017 með megináherslu á gullleit og gullrannsóknir á Grænlandi. Fyrirtækið er með leyfi til að leita að og vinna gull og aðra verðmæta málma á Suður-Grænlandi. Stærsta eign Amaroq  er Nalunaq-gullnáman, sem verið er að koma aftur í vinnslu.

Hlutabréf Amaroq eru skráð á mörkuðum í borgunum Toronto og London. Meðal stærstu hluthafa í félaginu eru íslenskir fjárfestar, þjóðarsjóðir Grænlands og Danmerkur og stærsti lífeyrissjóður Grænlands. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK