Tímabili heimsmeistarans lokið

Enzo Fernández leikur ekki meira með Chelsea á þessu tímabili.
Enzo Fernández leikur ekki meira með Chelsea á þessu tímabili. AFP/Glyn Kirk

Argentínumaðurinn Enzo Fernández mun ekki leika meira með knattspyrnuliðinu Chelsea á tímabilinu vegna meiðsla. 

Frá þessu greinir hinn áreiðanlegi Fabrizio Romano en búist er við því að Fernández geti tekið þátt í lokakeppni Ameríkubikarsins, Copa America, í Bandaríkjunum í sumar. 

Fernández var lykilmaður er Argentína varð heimsmeistari í desember árið 2022. Í janúar 2023 gekk hann síðan til liðs við Chelsea frá Benfica á yfir 100 milljónir punda. 

Hann hefur hins vegar ekki staðið undir nafni hjá Chelsea sem er í níunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka