Ákærður fyrir að stefna lífi starfsmanna í hættu með húsnæði Kjartan Kjartansson skrifar 3. desember 2020 10:54 Fjölmargir gallar fundust á iðnaðarhúsnæðinu þegar slökkviliðsstjórinn á höfuðborgarsvæðinu tók það út að beiðni lögreglu í febrúar árið 2018. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Vísir/Vilhelm Eigandi starfsmannaleigunnar 2findjob ehf. hefur verið ákærður fyrir hættubrot og brot gegn lögum um brunavarnir með því að hafa látið starfsmenn leigunnar búa í iðnaðarhúsnæði í Reykjavík án tilskilinna leyfa og fullnægjandi brunavarna. Hann er sakaður um að hafa stofnað lífi og heilsu starfsmannanna í háska í ábataskyni.
Í ákæru héraðssaksóknara á hendur manninum, sem er íslenskur karlmaður á sextugsaldri búsettur í Noregi, kemur fram að hann hafi látið útbúa búseturými fyrir starfsmenn á vegum 2findjob í iðnaðarhúsnæði að Smiðshöfða 7 í Reykjavík í lok árs 2017 og byrjun 2018. Það gerði hann án tilskilinna leyfa og án þess að gera nauðsynlegar ráðstafanir varðandi brunavarnir sem hafi verið alls ófullnægjandi. Bráð íkveikjuhætta var talin í húsinu. Þegar slökkviliðsstjórinn í Reykjavík skoðaði eldvarnir í húsinu að beiðni lögreglu í febrúar árið 2018 kom í ljós að engin brunahólf voru í húsnæðinu til að takmarka útbreiðslu elds og reykjar, flóttaleiðir voru ófullnægjandi, innveggir og gistirými voru úr auðbrennanlegu efni, ástand raflagna var óásættanlegt og skapaði eldhættu auk þess sem starfsemi sem fór fram í húsnæðinu fól í sér íkveikjuhættu. Þannig var eigandi starfsmannaleigunnar, sem var einnig eigandi fyrirtækisins sem leigði húsnæðið, talinn hafa stofnað heilsu og lífi um 24 starfsmanna leigunnar sem voru búsettir í húsnæðinu um þriggja mánaða skeið í augljósan háska „í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt“. Hafa lokað iðnaðarhúsnæði sem er notað til búsetu Ólöglegt er að hafa búsetu í iðnaðarhúsnæði og hefur slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu lokað slíku húsnæði þar sem brunavörnum var áfátt undanfarin ár. Í mörgum tilfellum eru það erlendir farandverkamenn sem hafast við í húsnæði af þessu tagi. Það er ekki aðeins í iðnaðarhúsnæði þar sem erlendir verkamenn hafa búið við hættulegar aðstæður. Þrír Pólverjar, tvær konur og einn karlmaður, fórust í eldsvoða í húsi við Bræðraborgarstíg 1 í Reykjavík í júní í sumar. Þrettán manns voru í húsinu þegar eldurinn kviknaði en enn fleiri bjuggu þar. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sagði að alls hafi 73 einstaklingar verið skráðir með lögheimili í húsinu. Húsið sem brann er í eigu HD Verks. Lögmaður þess neitaði því að svo margir hafi búið í húsinu og hafnaði því að fyrirtækið tengdist starfsmannaleigum í sumar.
Lögreglumál Dómsmál Reykjavík Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Innlent Efstar með ómarktækan mun á milli sín Innlent Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Innlent „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Innlent Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Innlent Fleiri fréttir Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Sjá meira