Fjögur útköll vegna gróðurelda frá því Heiðmörk brann Vésteinn Örn Pétursson skrifar 9. maí 2021 19:44 Gróðurinn logaði glatt í hrauninu í Garðabæ. Vísir/Helena Rakel Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur slökkt fjóra sinuelda frá því það slökkti gróðureld í Heiðmörk síðastliðinn fimmtudag. Varðstjóri segir að lítið þurfi til að kveikja sinubruna og að í sumum tilfellum sé grunur um íkveikju.
Í dag var aukamannskapur slökkviliðs kallaður út vegna sinuelds í hrauni í Garðabæ. Tilkynningin barst um tuttugu mínútur yfir tvö en slökkvilið hafði ráðið niðurlögum eldsins rétt upp úr klukkan fjögur. Óvissustig vegna hættu á gróðureldum er í gildi á sunnan- og vestanverðu landinu, allt frá Eyjafjöllum í austur að Snæfellsnesi í vestri. Ákvörðunin var byggð á því að lítið hefur rignt þessu svæði undanfarið og veðurspá næstu daga sýnir heldur ekki neina úrkomu af ráði. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir veðurspána áhyggjuefni þegar kemur að sinueldum. Frá Heiðmerkurbrunanum á fimmtudag hefur slökkviliðið farið í fjögur útköll vegna sinu- eða gróðurelda. Um er að ræða brunann í Garðabæ í dag, auk þriggja í Grafarvogi. Hann segir að í einhverjum tilfellum sé grunur um íkveikju. „Okkur grunar það oft, sérstaklega á svæðum þar sem er ekki mikil umferð,“ segir varðstjóri í samtali við Vísi. Oft finnist gler, til dæmis úr flöskubotni, sem kunni að hafa verið notað sem stækkunargler. Þá þarf oft ekki mikið til að stór sinubruni fari af stað. Eitt útkallið í Grafarvogi hafi til dæmis mátt rekja til þess að sígarettustubb var hent í grasið. Eldurinn breiddi fljótt úr sér og því var slökkvilið kallað á vettvang. Hér að neðan má sjá myndir frá vettvangi brunans í Garðabæ í dag. Aukamannskapur var kallaður út til að taka þátt í slökkvistarfi.Vísir/Helena Rakel Gróðurinn er illa leikinn eftir eldinn.Vísir/Helena Rakel
Gróðureldar á Íslandi Gróðureldar í Heiðmörk Slökkvilið Garðabær Tengdar fréttir Sinueldur í hrauni í Garðabæ Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur verið kallað út vegna sinuelds í hrauni í Garðabæ. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði barst tilkynning um klukkan hálf þrjú, en það ku loga í og við gjótu í hrauninu, nærri svokölluðum Hádegishól. 9. maí 2021 14:54 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira
Sinueldur í hrauni í Garðabæ Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur verið kallað út vegna sinuelds í hrauni í Garðabæ. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði barst tilkynning um klukkan hálf þrjú, en það ku loga í og við gjótu í hrauninu, nærri svokölluðum Hádegishól. 9. maí 2021 14:54