Ekki miklar líkur á eldgosi í núverandi ástandi Kjartan Kjartansson skrifar 5. mars 2021 17:26 Fagradalsfjall á Reykjanesi Vísir/Vilhelm Engar vísbendingar eru um að kvika færist hratt nær yfirborði á Reykjanesskaga og telur vísindaráð almannavarna ekki miklar líkur á eldgosi á meðan það ástand varir. Jarðskjálfti upp á allt að 6,5 að stærð er talinn á meðal líklegustu sviðsmynda í jarðskjálftavirkninni á svæðinu.
Jarðskjálftavirkni og kvikuhreyfingar halda áfram á Reykjanesskaga en óróapúls sem greindist fyrst á miðvikudag og benti til yfirvofandi eldgoss hefur ekki greinst í dag. Í tilkynningu frá vísindaráðinu segir að álit þess frá því í gær að ekki sé miklar líkur á eldgosi að svo stöddu sé óbreytt. Áfram þurfi þó að gera ráð fyrir þeim möguleika að staðan geti breyst hratt. Komi til eldgoss bendi öll gögn til þess að það verði á svæðinu á milli Fagradalsfjalls og Keilis. Spennuáhrif frá umbrotasvæðinu milli Fagradalsfjalls og Keilis skýri að öllum líkindum jarðskjálfta sem orðið hafa í Svartsengi og í grennd við Trölladyngju undanfarna daga, enda hafi engin aflögun mælst sem tengja megi því að kvika sé þar á leið til yfirborðs. Því sé ekki ástæða til að ætla að eldgos séu yfirvofandi á þessum stöðum nú, né annarstaðar á Reykjanesskaga utan umbrotasvæðisins við Fagradalsfjall og Keili. Líkt og Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur, sagði Vísi eftir fund vísindaráðsins í dag er talið að kvikugangur liggi nær lóðrétt í jarðskopunni og áætlað að hann nái upp á um tveggja kílómetra dýpi. Mesta opnun jarðskorpunnar sé þar fyrir neðan og nái niður á um fimm kílómetra dýpi. Gangurinn gæti verið fimm til sex kílómetra langur. Líkanareikningar benda til að ef til goss kæmi gæti sprunga opnast einhvers staðar á því sem hefur verið virkast undanfarið, frá miðju Fagradalsfjalli að Keili. Stóri skjálfti ein af sviðsmyndunum Vísindaráðið telur nokkrar sviðsmyndir líklegastar um framhaldið. Það dregur úr jarðskjálftavirkni næstu daga eða vikur. Hrinan mun færast í aukana með stærri skjálftum, allt að 6 að stærð í nágrenni við Fagradalsfjall Skjálfti af stærða allt að 6.5 verður sem á sér upptök í Brennisteinsfjöllum Kvikuinnskot haldi áfram í nágrenni við Fagradalsfjall: Kvikuinnskotsvirkni minnkar og kvika storknar Leiðir til flæðigoss með hraunflæði sem mun líklega ekki ógna byggð Einnig var farið yfir stöðuna á uppsetningu nýrra mælitækja. Sérfræðingar Veðurstofunnar, Háskólans og annarra samstarfsaðila hafa unnið hörðum höndum síðustu daga að fjölgun mælitækja á svæðinu til að geta gefið skýrari mynd af framvindu atburðarrásarinnar á Reykjanesskaga. Síritandi GPS stöðvum hefur þegar verið fjölgað í vikunni og unnið verður áfram að uppsetningu fleiri slíkra stöðva um helgina ásamt uppsetningu á jarðskjálftamælum. Öll mælitækin eru svo tengd við vöktunarkerfi Veðurstofunnar. Fréttin hefur verið uppfærð.
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Almannavarnir Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Innlent Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Innlent Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Innlent Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Erlent Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Erlent Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Erlent Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Erlent Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Stillir viðtækið á alheimsdögunina Þrír handteknir vegna vopnalagabrota og tveir vegna líkamsárásar Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Stóra stundin að renna upp: Bjartsýn en með báða fætur á jörðinni Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Kveikt í papparusli í Glæsibæ Flugfélögin grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Ákall frá föður látins fanga og beinagrindur á Bessastöðum Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Brynjar hefur ekki orðið var við neina skrímsladeild í Valhöll Framkvæmdir muni ekki hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Bjóða farþegum að breyta ferðum vegna mögulegs verkfalls Grunaður um að valda konunni áverkum sem leiddu hana til dauða Byrja að sekta vegna nagladekkja þrettánda maí Ósáttur með tal eftirlitsmannsins í kaupfélaginu en sektin stendur Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Á vesturleiðinni en ekki á hundrað og tíu Hægagangur í viðræðum við flugvallarstarfsmenn og styttist í aðgerðir Sanngirnisbætur, kjaraviðræður og andlát á Litla-Hrauni Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Sækjast eftir frekara gæsluvarðhaldi vegna andlátsins við Kjarnagötu Tjá sig ekkert um gang Hamraborgarrannsóknarinnar Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Sjá meira