Þingmaður gerir athugasemd við orrustuþotuflug yfir Akureyri Kjartan Kjartansson skrifar 15. október 2020 22:26 F-15-orrustuþota líkt og þær sem flugu yfir Akureyri í gær. Myndin er úr safni. Vísir/Getty
Bandarískar orrustuþotur ollu töluverðum skarkala þegar þær flugu yfir Akureyri í gær. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins gerði athugasemd við að þoturnar hefðu verið með afturbrennara í gangi við Landhelgisgæsluna og telur að misskilningur hafi átt sér stað um hvað væri leyfilegt. Þoturnar taka þátt í loftrýmisgæslu á Íslandi þessa dagana og hafa meðal annars æft aðflug að Akureyrar- og Egilsstaðaflugvelli. Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, birti myndband þar sem F-15-orrustuþota sést í aðflugi með miklum drunum yfir Akureyri á Facebook-síðu sinni í dag. Í færslunni segist Njáll Trausti hafa verið á gangi með hundi sínum fyrir ofan Skautahöllina þegar hann sá þoturnar á ferð. Sem flugáhugamanni hafi þoturnar verið honum himnasending. Þeim hafi aftur á móti fylgt mikið sjónarspil og hávaði. „Það var hins vegar óheppilegt að afturbrennararnir voru í gangi og mikill hávaði myndaðist vegna þessa,“ skrifar þingmaðurinn. Því segist hann hafa haft samband við Landhelgisgæsluna í morgun til að gera athugasemd við notkun afturbrennaranna. „Það er greinilegt að það hefur orðið einhver misskilningur á milli aðila um hvað mætti gera og hvað ekki. Það er milli Gæslu og ameríska flughersins. Mér skilst að þetta hafi síðan verið tekið föstum tökum og allt sé á beinu brautinni núna. Við skulum læra af þessu,“ skrifar Njáll Trausti. Í færslunni hér fyrir neðan má sjá myndband Njáls Trausta af herþotu með afturbrennara í gangi koma til lendingar á Akureyri í gær.
Akureyri NATO Fréttir af flugi Akureyrarflugvöllur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Innlent Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Erlent Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Innlent Fleiri fréttir Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Sjá meira