Dæmd fyrir brot á lögum gegn þrælahaldi vegna nýrnaviðskipta Hólmfríður Gísladóttir skrifar 23. mars 2023 12:49 Beatrice og Sonia mæta fyrir dóm í Lundúnum í febrúar síðastliðnum. Getty/Jonathan Brady Háttsettur stjórnmálamaður frá Nígeríu, eiginkona hans og læknir hafa verið fundinn sek um að hafa borgað manni fyrir að ferðast til Bretlands til að „gefa“ nýra. Dóttir hjónanna, sem átti að fá nýrað, var sýknuð.
Samkvæmt breskum miðlum er þetta í fyrsta sinn sem fólk hlýtur dóm fyrir að hafa brotið gegn löggjöf um nútíma þrælahald, sem tók gildi árið 2015 þegar eldri lög um þrælahald og mansal voru sameinuð. Ike Ekweremadu, 60 ára, er fyrrverandi varaforseti nígeríska þingsins. Hann og eiginkona hans, Beatrice 56 ára, og læknirinn Obinna Obeta, 51 árs, voru fundinn sek um að hafa skipulagt ferðalag 21 árs götusala frá Lagos til Bretlands til að nýta úr honum annað nýrað. Dóttir hjónanna, Sonia Ekweremadu, var ákærð en sýknuð en það var hún sem átti að fá nýrað. Sonia greindist með nýrnasjúkdóm þegar hún stundaði mastersnám í kvikmyndagerð við Newcastle University og varð að hætta í náminu. Hinn ónefndi ungi maður gaf sig fram við nýrnadeild Royal Free-sjúkrahússins í Lundúnum í febrúar árið 2022 og sagðist vera frændi Soniu. Starfsmaður sjúkrahússins tók gjald fyrir að túlka fyrir manninn, sem reyndi hvað hann gat að sannfæra yfirvöld um að hann væri sjálfviljugur gjafi. Saksóknarinn í málinu sagði Ekweremadu-hjóninn og Obeta hafa farið með manninn eins og „einnota eign“ og „varahlut fyrir gjald“. Hegðun þeirra hefði einkennst af óheiðarleika og hræsni en Ekweremadu er lögmaður og stofnaði samtök gegn fátækt sem átti þátt í að semja löggjöf Nígeríu gegn líffærasölu. Ekweremadu, sem á nokkrar fasteignir og hefur um 80 manns í vinnu, var sagður hafa samþykkt að misnota sér fátækt einstaklings til að tryggja dóttur sinni nýra, án þess að hafa viljað nokkuð annað af honum vita. Við réttarhöldin, sem stóðu yfir í sex vikur, sagðist Ekweremadu hins vegar fórnarlamb svika og Obeta sagði rangt að manninum hefði verið boðin greiðsla fyrir nýrað. Beatrice sagðist ekkert hafa vitað um meint samsæri. WhatsApp skilaboð sýndu að Obeta rukkaði Ekweremadu um jafnvirði 1,3 milljón króna fyrir milligöngu og fyrir greiðslu til fórnarlambsins. Saksóknarinn sagði Ekweremadu hafa hunsað læknisráð um að finna gjafa meðal náinna fjölskyldumeðlima. Það hefði ekki komið til greina. Refsing verður ákveðinn 5. maí næstkomandi.
Bretland Mannréttindi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Innlent Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Erlent Sinueldur í Munaðarneslandi Innlent „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Innlent Fleiri fréttir Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Sjá meira