Guðmundur Fylkisson hlaut viðurkenningu Barnaheilla

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands, Erna Reynisdóttir framkvæmdastjóri Barnaheilla, Harpa …
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands, Erna Reynisdóttir framkvæmdastjóri Barnaheilla, Harpa Rut Hilmarsdóttir formaður Barnaheilla og Guðmundur Fylkisson viðurkenningahafi og aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Ljósmynd/Barnaheill

Guðmundur Fylkisson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, hlaut í dag viðurkenningu Barnaheilla - Save the Children, fyrir störf sín í þágu barna og ungmenna sem eru í vanda og þá nálgun sem hann hefur í samskiptum sínum við þau.

Guðmundur hefur undanfarin ár haft yf­ir­um­sjón með leit að týnd­um ung­menn­um.

Í tilkynningu Barnaheilla segir að um störf Guðmundar: 

„Guðmundur leggur sig fram um að nálgast ungmenni af virðingu og nærgætni til að auka ekki á vanlíðan þeirra og skaða. Þrátt fyrir að hann starfi fyrir lögregluna á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar hann við leit að börnum alls staðar af landinu. Guðmundur leggur sig fram um að varast staðalímyndir því börnin sem hann leitar að eru á ýmsum aldri og með mismunandi bakgrunn og bakland þeirra missterkt.“

Athöfn vegna viðurkenningarinnar fór fram bæði rafrænt og í veislusal Nauthóls í dag. Harpa Rut Hilmarsdóttir formaður Barnaheilla tilkynnti um verðlaunin og Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands flutti ávarp og afhenti viðurkenninguna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka