Sendiherra Mjanmar hjá SÞ rekinn fyrir að biðja um hjálp Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 27. febrúar 2021 17:28 Mótmælendur krefjast aðstoðar alþjóðasamfélagsins fyrir utan höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í Mjanmar. EPA-EFE/NYEIN CHAN NAING Herforingjastjórn Mjanmar, sem rændi völdum í byrjun febrúarmánaðar, hefur rekið Kyaw Moe Tun, sendiherra landsins hjá Sameinuðu þjóðunum, eftir að hann óskaði eftir aðstoð SÞ til þess að hrekja herforingjastjórnina frá völdum.
Moe Tun flutti tilfinningaþrungna ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna á föstudag og sagði hann að enginn ætti að starfa með hernum fyrr en hann skilaði völdum aftur til lýðræðislega kjörinna fulltrúa landsins. Frá því að herinn framdi valdarán hafa hundruð þúsunda mótmælt valdaráninu, bæði innan landsins og utan þess. Mótmælendur hafa mætt mikilli mótstöðu hersins og hefur stjórnin gefið út tilskipun um að allir þekktir mótmælendur skuli handteknir tafarlaust. Þá gaf herforingjastjórnin út tilskipun þess efnis að herinn þyrfti ekki samþykki dómstóla, eins og áður, til þess að framkvæma leit á heimilum og öðrum einkaeignum fólks. Í gær fóru fram fjölmenn mótmæli í landinu sem herinn svaraði af fullu afli. Fjölmiðlar í Mjanmar segja að tugir mótmælenda hafi verið handteknir og að kona hafi orðið fyrir byssuskoti í borginni Monwya. Ekki hafa fengist nánari upplýsingar um ástand og líðan hennar. Í kjölfar valdaránsins 1. febrúar síðastliðinn voru allir meðlimir ríkisstjórnarinnar, og fleiri háttsettir einstaklingar innan opinbera kerfisins, handteknir. Þar á meðal er Aung San Suu Kyi, leiðtogi landsins. Moe Tun hvatti alþjóðasamfélagið í ræðu sinni í gær til þess að beita öllum mögulegum leiðum til þess að koma hernum frá valdastóli og koma lýðræðinu aftur á fót. Moe Tun sagðist einnig fulltrúi ríkisstjórnar Suu Kyi, sem hefur að öllum líkindum ekki fallið í kramið hjá herforingjastjórninni. Til þess að ítreka andstöðu sína við herforingjastjórnina lyfti Moe Tun upp þremur fingrum, merki sem andstæðingar herforingjastjórnarinnar hafa tileinkað sér og er merki um andstöðu gegn alræðisvaldi. Tilkynnt var um það að Moe Tun hafi verið rekinn frá störfum í ríkissjónvarpi Mjanmar í morgun. Þar kom fram að hann hafi „svikið landið og talað máli óopinberrar hreyfingar sem er ekki í forsvari fyrir landið“ og að hann hafi „misnotað vald sitt og skyldur sínar sem sendiherra.“
Mjanmar Sameinuðu þjóðirnar Tengdar fréttir Fjölmenn mótmæli í skugga skothríðar Þúsundir mótmælenda gengu um götur borga Mjanmar í morgun, þrátt fyrir að hermenn hafi skotið minnst tvo mótmælendur til bana í gær og sært marga aðra. 21. febrúar 2021 10:54 Blóðugur dagur í Mjanmar Minnst tveir eru látnir eftir að hermenn hófu skothríð á mótmælendur sem voru að mótmæla valdaráni hers Mjanmar. Fregnir herma að tugir hafi særst í skothríðinni sem hófst nærri hafnarsvæði Mandalay, næst stærstu borg ríkisins. 20. febrúar 2021 15:25 Látin eftir að hafa verið skotin í höfuðið í mótmælum Tvítug kona sem særðist alvarlega þegar hún var skotin af lögreglu í Mjanmar á dögunum er látin af völdum áverkans. 19. febrúar 2021 07:24 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Innlent Efstar með ómarktækan mun á milli sín Innlent Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Innlent „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Innlent Fleiri fréttir Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sjá meira
Fjölmenn mótmæli í skugga skothríðar Þúsundir mótmælenda gengu um götur borga Mjanmar í morgun, þrátt fyrir að hermenn hafi skotið minnst tvo mótmælendur til bana í gær og sært marga aðra. 21. febrúar 2021 10:54
Blóðugur dagur í Mjanmar Minnst tveir eru látnir eftir að hermenn hófu skothríð á mótmælendur sem voru að mótmæla valdaráni hers Mjanmar. Fregnir herma að tugir hafi særst í skothríðinni sem hófst nærri hafnarsvæði Mandalay, næst stærstu borg ríkisins. 20. febrúar 2021 15:25
Látin eftir að hafa verið skotin í höfuðið í mótmælum Tvítug kona sem særðist alvarlega þegar hún var skotin af lögreglu í Mjanmar á dögunum er látin af völdum áverkans. 19. febrúar 2021 07:24